Stærðin skiptir ekki máli.
04. september 2008 klukkan 10:23
Mér er svo hugsað um það þessa dagana, þegar fólk er að velja sér hunda. Að það sé meiri fyrirferð í þessum heldur en hinum. Ég get sagt ykkur að mesta fyrirferðin er í litlu hundunum. Þeir eru yfir höfuð taugaveiklaðir og oftar en ekki mjög grimmir. Það þarf alveg jafn mikið að hreyfa litla hunda eins og stóra. Eini munurinn er kannski þegar kemur að bílferðum. Smáhundarnir þurfa minna búr. Ég tala af reynslu, og mundii aldrei fá mér smáhund aftur, eftir að hafa eignast labrador. Það er oft sagt, ég á ekki hund ég á LABRADOR. Labradorinn er vinsælasti hundur í heiminum og hefur verið í mörg ár. Ég var með Henry hér í hálfan mánuð og ég fann ekki fyrir því að ég væri með tvo stóra hunda. Kannski af því að ég er í stóru og rúmgóðu alvöru hundahúsi. Ég er að vonast til þess að fá Henry í heimsókn um helgina.
Berglind Gestsdottir

Bara að senda þér kvitt og knús. Verður erfitt að láta krílin þín fara, get skilið það en þú ert búin að vanda þig svo vel við þetta frá byrjun að ég er 100% viss um að þú hefur staðið þig alveg jafnvel við að finna góð heimili og eigendur.
Þetta með litlu og stóru hundana, ég er líka með Enskan Cocker Spaniel sem er telst nú ekki til smáhunds. Hún er alveg yndisleg eins og Tinna en ekkert minni fyrirhöfn með hana. Ef eitthvað er þarf hún meiri athygli, sérstaklega þessa dagana, svolítið hrædd við hvolpana og abbó. Svo er hún síðhærð svo mikil vinna með feldinn, það er svo margt að hugsa um þegar maður fær sér hund.
Kær kveðja
Auður og Æsuborga gotið.