VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Skemmtilegur dagur.

07. september 2008 klukkan 01:06
Það var fjör hjá okkur í dag. Henry kom í heimsókn. Rosalega var gaman að sjá hann aftur. Hann er alveg yndislegur. Kalli og Agla komu með hann og voru með litlu Mettu með sér. Það var gaman að horfa á Kalla þegar hann var að stilla tíkunum upp og skoða þær. Þær eru mjöööööööög flottar. Hann valdi sér hana Visku. Nú langar mig svo að halda henni Von eftir.
Kristín, Guðjón og Víðir, Skarphéðinn,Pála og krakkarnir þeirra og Elías og Anna Mæja komu öll að berja kappann augum sem og að heimsækja hvolpaskottin sín.
Kristín og Co. og Skarphéðinn og co. stoppuðu í kaffi og kökur, og Elias og Anna Mæja komu seinni partinn og voru hjá okkur í mat. Ekki má gleyma ljúfu innliti Maríu og þorsteins í Lágholtinu. Þau eru með Nátttrölla ræktun. Þau sögðu að ég væri örugglega með flottasta gotið sem væri í gangi núna Svalur uh! ég varð ekkert smá montin, og sagðist bara vera rosa þakklát fyrir hvað allt virðist hafa lukkast vel osfrv.
Ég hef alltaf gaman af að hitta Maríu, við höfum mjög sterkar skoðanir á ýmsu í hundaheiminum og liggjum ekkert á þeim skoðunum. Það væri gaman að pústa aðeins út hér, en held að þetta sé ekki vettvangurinn. Ég get alveg látið það flakka að það sýður á mér út af ýmsu sem er í gangi.Öskrandi Alls konar rusl got og önnur þar sem heilbrigði er ekki uppfyllt.
Berglind Gestsdottir
Guðbjörg GuðmundsdóttirEnda sagði ég þér það ;o) Flottustu hvolpar í heimi! Ég skil vel að þú viljir halda einni eftir, væri svo gaman fyrir þig að hafa mæðgurnar....
Svo máttu alltaf bjalla ef upp úr er að sjóða, veist minn hug í ræktun. Vona að við getum farið að hreyfa voffana okkar saman fljótlega, Askur og Nótt eru svo fín saman
07. september 2008 klukkan 11:28
Hæ Berglin og fjölsk.

Takk kærlega fyrir að taka á móti okkur í gær. Þegar maður kemur til ykkar er maður trakteraður með kökum og kaffi það er alveg rosalega notarlegt og gaman að koma til ykkar. Mikið var gaman að fá að sjá Henry hann er svooo flottur. Þau eru svo falleg Nótt og Henry alveg yndisleg ekki furða að hvolparnir séu svona fallegir með svona flotta foreldra. Vetur stækkar og stækkar samt ekki langt síðan við kíktum síðast hann er svo æðislegur. Hlökkum svo til að fá hann heim það er verið að undibúa komu hans núna í þessum töluðu orðum.

Bestu kveðjur
Kristín og Co.
07. september 2008 klukkan 11:39

Skrifa athugasemd