Örmerking, bólusetning, ormahreinsun,tryggingar og ćttbókarskráning.
12. september 2008 klukkan 14:59
Vaknaði örmagna eftir annasama kvöldvakt sem dróst á langinn fram á nótt. Kom heim, og mér til "ánægju" hafði ekki verið gengið nógu vel frá hvolpagirðingunni og þeir sem sagt í essinu sínu um allan skálann og búnir að "baka" út um allt. Get alveg sagt ykkur að ég var varla í stuði til að fara að þrífa, en ég bara get ekki haft sóðalegt í kringum þá. Þannig að það var bara að vinda sér í skúringagræjurnar og hefjast handa.
Vaknaði svo eldsnemma í morgunn og endurtók þrifin, setti hvolpana út að borða í góða veðrið.
Katrín Davíðsdóttir sem ég tel eina af færustu dýralæknunum kom heim og heilsufarsskoðaði,örmerkti,bólusetti og ormahreinsaði. Við tók svo hjá mér heljarinnar pappírsvinna.
Þusti síðan í HRFI með alla pappírana fyrir ættbókarskráninguna. BARA SVO ÞIÐ VITIÐ ÞAÐ, AÐ SVARIÐ SEM ÉG FÉKK UM AFHENDINGU ÆTTBÓKANNA, ERU ALLA VEGA 4 VIKUR. Þær verða svo sendar til mín og ég kem þeim til ykkar.
Tryggði svo allt stóðið hjá VÍS. Hvolparnir eru líf,slysa og sjúkdómatryggðir.
Á heimleiðinni varð ég að koma við í Hundaheimi hjá henn Esther. Ég keypti auðvitað nýjasta cosy bælið fyrir Nótt. Keypti líka Dermoscent til að setja í feldinn hennar. Ég mun baða Nótt í kvöld og hvolpana á morgunn fyrir heimferðina.

Berglind Gestsdottir

Allavega erum við að farast úr spenningi og Innfluttningpartí sem við vorum að fara í til frænku Pálu á morgun - forget it....það var skotið á bólakaf...
Munum bara sitja og horfa á litla gullið okkar allt annaðkvöld með popp og kók...Hver þarf sjónvarp.
kv
skarpi og co...