6 farnir
14. september 2008 klukkan 00:19
Allir strákarnir mínir eru farnir á góð heimili. Við heimsóttum Vetur í Keflavík og það var greinilegt að hann hefur það gott umvafinn kærleika. Eins er með hina. Það var skrýtið að sjá þá fara í dag, en líka gaman að sjá gleðina hjá öllum nýju fjölskyldunum. Þetta var ekki eins erfitt og ég hélt það yrði.
Systurnar sakna bræðra sinna
Systurnar sakna bræðra sinna
Berglind Gestsdottir

Við "feðgarnir" vöknuðum svo klukkan 6:15 og "pabbinn" var ekkert rosalega brattur svona snemma morguns en það lagaðist fljótt. Hann er búinn að pissa í 80% tilfella á dagblöð aðeins nokkur slys þar fyrir utan en svo er hann búinn að vera rosalega duglegur að gera nr 2. Hann er búinn að fara út í öll skiptin og bæsa á sama stað nánast.
ætlum að slappa af í dag inni því það er varla "hundi út sigandi" í þetta leiðinda haustveður...