VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

ÞEGAR VONIN EIN ER EFTIR.

16. september 2008 klukkan 00:15

Þetta hljómaði dramatískt Svalur En þannig er nú staðan Von er nú ein eftir. Kalli kom í dag og tók hana Visku með sér heim. Ég er rosa ánægð að það skuli vera komin tík frá mér í Bláskógaræktunina. Hlæjandi
Ég er því í nákvæmlega sömu stöðu og þið elskuleg. Búrið er komið inn svefnherbergi til mín.
Ég fékk þá snilldar hugmynd að stinga chihuahua hund spottinu í búrið með Von. og viti menn. Hún steinþegirGlottandi EF YKKUR VANTAR CHIHUAHUA TIL AÐ PASSA FYRIR YKKUR ÞÁ MEGIÐ ÞIÐ FÁ HANN...EN ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ SKILA HONUM AFTURSvalur 
Jæja nú ætla ég að njóta þess að leggjast í bælið með uppáhaldstímaritið mitt SÁM sem barst inn um lúguna hjá mér í dag.

Berglind Gestsdottir
Hæ hó.
Þá er fyrsta nóttin hennar Visku liðin á nýjum stað. Hún var ægilega fjörug í gærkveldi, hljópu um allt og pissaði um allt, he he. Svo eyddi hún nóttinni með Kókó en hvolpurinn hennar Kókóar fór Grafarvoginn í uppeldi hjá henni Auði. Þannig að Kókó var í sárum og Viska virtist ekki alveg bæta upp þann missi. Hvolpsi kemur nú aftur eftir 3-4 vikur. Þá verður Viska orðin heimakær og ráðrík og fær einhvern til að hamst í. Maður er hálf ryðgaður í þessu hvolpastandi, við höfum ekki fengið hvolp inn á heimilið í um 12 ár fyrir utan það sem hefur fæðst hjá okkur og o.m.g. ég var búin að gleyma hvað þeir kúka mikið og pissa oft, nú er það bara tuskan á loft og hlaupa á eftir ólátabelgnum um allt og kalla nei nei nei þegar hún óþekktast. En við eigum nú að heita reynsluboltar í þessu öllu saman svo við tökum þetta á kúlinu................
bestu kveðjur til Vonar og Nætur

Agla og Kalli
16. september 2008 klukkan 09:14

Skrifa athugasemd