Út að aka og fyrirlestur 25.okt
18. september 2008 klukkan 00:08
Von fór í bíltúr í kvöld. Mosó - Kóp og til baka. Hún var alveg eins og ljós, en þó greinilegt að henni stóð ekki alveg á sama. Vildi láta halda á sér eins og ungabarni. Hún er svo yndisleg og góð. Það gengur vel að grípa hana við losunarathafnirnar og rjúka með hana út fyrir, en hún er held ég ekki að tengja klappið og skrækina fyrir frammistöðuna. Horfir eiginlega á okkur eins og hún hugsi! ÞAÐ ER EITTHVAÐ MEIRIHÁTTAR AÐ ÞESSU LIÐI :) Þá er það þriðja nóttin framundan í búrinu. Nú mun hún sofa ein.
Já svo er spennandi fyrirlestur þann 25.okt á vegum HRFI. Ég verð þar.
Já svo er spennandi fyrirlestur þann 25.okt á vegum HRFI. Ég verð þar.
Berglind Gestsdottir

Annars voru fyrstu dagarnir svolítið erfiðir að því leiti að það var svo erfitt að sjá hvað Rökkvi saknaði systkina sinna en hann er allur að koma til og eltir okkur út í eitt og vill bara vera hjá okkur, annað hvort að kúra eða leika. Og já ég verð að segja þér það að við höfum verið að leika svolítið mikið við hann með boltann hans og hann fer alltaf og sækir hann eftir að við höfum kastað honum og þá kemur hann til baka með boltann og færir okkur hann. Hann er draumur og sætastur:)
Bestu kveðjur, Myrra og strákarnir hennar fjórir