ÞVÍLÍKAR REYNSLUSÖGUR. /Fyrirgefiði strákar en ég GRÉT af hlátri.:)
23. september 2008 klukkan 23:44
Það er óhætt að segja að það hafi verið skítalykt af málinu í dag. Ég var að keyra Brunó heim og gleymdi að láta hann fara út og gera sitt áður. Á miðri leið finn ég þessa ferlegu lykt í bílnum og ég lít í spegilinn og sé að minn hafði ekki náð að halda í sér og svo eins og hann er í bíl - alveg óður, hlaupið um búrið, stigið í allt og svo klifrað í rimlunum á búrinu og skotið þannig klebrunum út um allt skott. Það skaust meira að segja einn kúkur yfir aftursætin og uppí loft og allt. Svo þegar ég er loksins komin heim, með æluna í hálsinum, því þið trúið ekki lyktinni í bílnum, þá opna ég efturhlerann á jeppanum og þá situr minn, starandi á mig, dillandi skottinu af ánægð yfir því að bíllin sé stopp og ég að ná í hann, með kúk um allan feld eins og að hann hafi velt sér uppúr öllu saman....Mig langaði svo að verða reiður en það var bara ekki hægt, þessi augu, og svo var þetta auðvitað mér að kenna....En þetta var lærdómsríkt.... Tekur einhver að séð að þrífa bíla að innan?
Ég tek undir með Skarpa og co. Nói reynir að naga allt sem hann kemst í þar með talið hendur, eyru og nef á mér og öðrum. Eins og þið segið; segja nafn hvolpsins og ákveðið NEI! Svo á strax að rétta þeim leikfang sem má naga. Eins hef ég notað aðeins ráð sem ég las en það er að núa þunnu lagi af Tabasco sósu á það sem ykkur þykir vænst um. Það var svolítið sárt að horfa upp á vælið, grátinn og hlaupin þegar Nói reyndi fyrst að naga eitthvað með sósunni á en ég beindi honum strax að vatnsdallinum og hann lagaðist fljótt. Ég var því aðeins hikandi við að nota þetta í fyrstu en nú set ég þetta á skógrindina,hælana á skónum (ekki leðrið) og ýmislegt í stofunni sem hann má ekki naga. Hann er því farinn að átta sig á því að þetta er ekki gott að setja beittar tennurnar á. Það virðist vera nóg núna að hann finni lyktina og þá heldur hann sig fjarri. Það er því pínulítil lykt hér inni sem minnir á Red Lobster veitingastaðinn... ;) Ég er ekki viss um hversu lengi þetta dugar en þá er að smyrja þunnu lagi á aftur uns hann lærir.
Ég er í bölvuðu basli með pissustand. Það kemur ekki píp frá honum nema hann sé í búrinu en þá lætur hann vita því hann vill ekki pissa í búrið. Ég lendi ævinlega í því að hann pissar smá gusum hér og þar og þó ég setji hann út og hann pissi þá getur vel verið að hann bæti aðeins við nokkrum mínútum eftir að hann kemur inn aftur. :( Ég fór í TAKK hreinlæti í gær; http://takk.is og keypti Blue sprinkler moppuna sem er á forsíðunni. Er líklega svipuð eða sú sama og Berglind er með. Þetta er algjör gargandi SNILLLD eins og ungdómurinn segir. Þetta er ódýrast þarna (3.550) en hann gaf mér góðan afslátt. Sama moppa eða mjög svipuð er á 7-9.000 BYKO og Húsasm. og eitthvað ódýrara í Bónus. Ég mæli með þessu. Nú eru gólfin okkar Nóa alltaf þau hreinustu í 101 R. :)
Nói er búinn að læra að sitja og bíða og er að læra að koma. Hann hlýðir ekki alltaf en þetta er allt að koma. Ég nota líka flautu á hann en ég er nýbúinn að bæta henni við svo hann er ekki alveg viss um hvað ég á við.
Eitt stutt fyrir „Sestu“ og „Bíddu“. Það verður í raun ein og sama skipunin.
Tvö stutt fyrir „Sækja“ eða hverja þá hreyfingu sem hann á að framkvæma nema að koma.
„Bíbb, bíbb, bíbb“ eða nokkurs konar "trilling sound" (nokkur stutt-hækkandi lækkandi hljóð) sem þýðir „Komdu“
Allt er þetta ennþá leikur og við erum líka að æfa okkur í að sækja. Ég fann ágætis plastkút (dummy) í Krónunni á nokkur hundruð krónur. Það var reyndar band þrætt í gegn með hnút á hvorum enda en ég tók það úr. Honum finnst þetta voðalega gaman.
Nói er ekki hrifinn af því að vera í bílnum. Hann vælir og grætur og ýlfrar. Kúkar og pissar þó hann sé nýbúinn að því úti og er voðalega aumur. Mér var sagt að stóra búrið hans væri jafnvel of stórt svo hann væri ekki nógu öruggur þar. Ég keypti því minna búr í Mosó til að hafa í bílnum. Það er lítið betra en ég ætla að prófa að breiða yfir það þannig að hann sjái bara út um eina hlið og sjá hvað það gerir. Það hjálpaði samt ekkert með stóra búrið. Að hafa annað búr er ómetanlegt. Það var allt of mikið vesen að brjóta saman stóra búrið og drösla því út til þess að setja það í bílinn. Búrin í Mosá eru á mjög góðu verði miðað við aðrar búðir sem ég hef skoðað. Þau eru ekki eins vönduð en ættu að duga ágætlega.
Berglind Gestsdottir
