VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

KEEP UP THE GOOD WORK

25. september 2008 klukkan 09:52
Jæja hvernig ætli gangi hjá mannskapnum. Ég var að reyna að rifja það upp með honum Gauta hvort það hafi einhvern tímann verið svona vesen með hana Nótt eins og Skarpi og Elías eru að lýsa.:)
Við munum bara alls ekki eftir því. Annað hvort hefur hún allta verið svona góð eins og hún er í dag, eða að ég er komin með einhver svakaleg elliglöp....svo sem farið að slá í mann en common.
Svo er ég nokkuð viss um að það er eitthvað svakalegt gott karma á Hvanneyri. Þar gengur allt eins og í lygasögu. Engar fréttir eru svo líka góðar fréttir, en mikið ofsalega hef ég gaman af pistlum strákanna.
Keep up the good work. Já og HALLÓ! hvar eru myndir af hvolpaskottunum.
Berglind Gestsdottir
Elías
 
Við Nói erum búnir að vera aðeins á flakki svo matartímarnir hafa ekki verið reglulegir hjá prakkaranum. Ég stóð sjálfan mig að því að muna ekki hvað hann væri búinn að borða oft yfir daginn í gær. (Ég notaði kúkaferðir til þess að rifja upp. : ) he he) Ég setti því saman lítið skjal sem ég ætla að nota til þess að halda utan um þetta. Set það hér með ef þið viljið skoða. http://vistacay.is/gogn/hvolpur.pdf Ég held að það verði líka bara gaman að fylgjast með þyngdaraukningunni hjá honum.
Hann vældi voðalega lítið í bílnum í gær. Hann var kannski þreyttur, búinn að vera að leika sér með Heklu frænku sinni og halda heimili systur minnar í herkví. Heimasætan neitaði að læra og sonurinn neitaði að fara að sofa meðan Nói var í heimsókn. Hann vekur alls staðar mikla lukku og þá sérstaklega hjá kvenfólki sem virðist fá í eggjabakkana við að sjá hann en annars er það almennt. Það bráðna allir þegar þeir sjá þennan litla brúna hnoðra. :)

Hann er ekkert voðalega hrifinn af því að fara út að ganga. Nagar ólina og togar á móti og vill ekki labba af stað. Svo þegar við erum loks komnir af stað þá vill hann helst hlaupa á undan og hengja sig um leið í ólinni svo hann er alltaf að hósta og ræskja sig. Furðufugl. Eða hundur. :)

Skór eru enn mikið sport og það er eins og með börn, ef hann liggur ekki hjá mér og það heyrist ekkert í honum þá er hann að gera eitthvað sem hann veit að hann má ekki. Bráðfyndið að læðast að honum og standa hann að verki. Þá er oft nóg að kalla nafnið hans til þess að hann standi upp frá verki sínu, færi sig um 1-2 metra og leggist svo niður og horfi skömmustulega á mig; „ÉG?!? Ég hef aldrei séð skó á minni stuttu ævi! Ég veit ekkert hvað þú ert að bulla. Leyfðu mér nú að sofa.“ Svo leggst hann fram á lappirnar og bíður þess að ég fari að gera eitthvað svo hann geti snúið sér aftur að þessari skemmtilegu iðju sinni. Honum er alveg sama þó ég beri í hann nagbein og leikföng. Það er ekkert fútt í þeim enda ekki lykt af mér af þeim.
25. september 2008 klukkan 12:15

Skrifa athugasemd