Þá er labradorinn búinn að keppa.
27. september 2008 klukkan 17:29
Ég svaf ekkert í nótt ég var svo hrædd um að sofa af mér sýninguna.........það hefur nefnilega gerst
En ég sem sagt mætti á réttum tíma.
Jamm, og svosem eins og oft áður var ég ekki sammála dómaranum.
Hefði viljað sjá annan sem besta rakkann og aðra sem bestu tíkina. En eins og þeir sem hafa fylgst með svona hundasýningum, þá er það á endanum geðþótta ákvörðun dómarans hver vinnur. Þessi dómari þótti nú ekkert spes. Er allround dómari. Hann hafði mestan áhuga á að telja tennurnar í hundunum.
undarlegt. Stekkjardals hvolparnir fannst mér mjög flottir (4 - 6 mán.),Það verður gaman að fylgjast með þeim. Dóri var svo með sína hvolpa og þeim gekk mjög vel. Nátttrölla Bárður sýndi sig mjög vel og stóð uppi sem sigurvegari í ungliðaflokknum.. Ég hlakka til að sjá dóminn hans. Gaman að lesa hvernig hann dæmdi sá sænski.
Misty mamma Nætur stóð sig vel eins og alltaf og Kalli sýndi Bláskóga de ja vu/Sólu.Hún var mjög falleg. Hún var valin
3.besta tíkin.Mjög flottur árangur. Hún Kristín sem á Valshamars-Vetur mætti á sýninguna. Hún fær + í kladdann
Það var gaman fyrir hana að sjá mömmu Nætur./Misty og alla þessa flottu labba. Greyið hún sat umkringd hundanördum eins og mér Guðsteini,Kalla ofl, og við töluðum nánast eitthvað óskiljanlegt tungumál. Henni fannst við vera eins og einhver sértrúarsöfnuður....lætur nærri lagi 
Við Nótt skelltum okkur síðan í klukkutíma göngu meðfram Varmánni. Nótt var eiginlega svona meira ofan í ánni.
og ég á göngustígunum.
Núna liggjum við báðar eins og klessur búnar á því............formið ekki alveg það besta, en það stendur til bóta. Nú skal tekið á því. Hrjót!
Jamm, og svosem eins og oft áður var ég ekki sammála dómaranum.
Misty mamma Nætur stóð sig vel eins og alltaf og Kalli sýndi Bláskóga de ja vu/Sólu.Hún var mjög falleg. Hún var valin
3.besta tíkin.Mjög flottur árangur. Hún Kristín sem á Valshamars-Vetur mætti á sýninguna. Hún fær + í kladdann
Við Nótt skelltum okkur síðan í klukkutíma göngu meðfram Varmánni. Nótt var eiginlega svona meira ofan í ánni.
Núna liggjum við báðar eins og klessur búnar á því............formið ekki alveg það besta, en það stendur til bóta. Nú skal tekið á því. Hrjót!
Berglind Gestsdottir

Kv. Hildur (bróðurdóttir Maríu og Ástrósar)