Kæra Auður.
29. september 2008 klukkan 15:04
Ég þakka þér fyrir bréfið. Á sýningunni sat með mér kona sem keypti hvolp af mér. Ég var að benda henni á ykkur hjá Tíbráar Tinda og segja henni að þið væruð með virtustu ræktendunum á landinu. Einnig benti ég henni á Auði Sif og var að tala um hvað hún væri flottur sýnandi og gerðuð hlutina svo vel. Svo ekki sé minnst á að við María hjá Náttrölla vorum að tala um hvað hún Berglind liti vel út.
Auðvitað samgleðst ég öllum sem tóku þátt í sýningunni. Ekki bara þeim sem unnu. Þegar ég sýndi Nótt í Fossatúninu var ég að fara í fyrsta skiptið. Eins og þú segir virðist ég ekkert vit hafa á hundum og hef virðist ekki vera, heldur leyfi til að hafa skoðun á því hvað mér finnast fallegir labradorar og hvað ekki, af því að ég er ekki sérfræðingur í hundum.
Í Fossatúnið fór ég að mér fannst með fallega tík. Tilgangurinn var ekki að sigra eitt eða neitt. Heldur að fá að vita frá Labrador dómara hvernig hund ég væri með í höndunum. Ég hljóp síðan hring eftir hring og safnaði á mig einhverjum borðum sem ég vissi ekkert hvað þýddu. Í kjölfarið fylgdu svo rósettur og bikarar. Já okkur gekk vel. Og það var gaman, en eins og hann Kalli Bridde vinur minn, sem er reyndur og góður ræktandi, hlær mikið að mér og nú síðast á sýningunni að það sé erfitt fyrir mig að keppa eftir að hafa unnið svona stórt í fyrsta skiptið. Fyrir mér skipta rósettur og bikarar ekki megin máli, það að fá fyrstu einkunn og góðan dóm er flott, allt í viðbót er bónus og bara frábært fyrir þá sem það fá.
Mér þykir skrýtið að maður þurfi að hafa farið á endalausar hundasýningar og helst til útlanda til að geta haft skoðun á því hvað sé fallegur labrador og hvað ekki.
Ég mun alltaf bera mikla virðingu fyrir þér og öllu sem þú stendur að. Ég mun geyma þetta bréf frá þér og lesa mér reglulega til áminngar um það frá þér að ég hef ekkert vit á hundum. Þakka þér enn og aftur fyrir og innilega til hamingju með góðan árangur ykkar hunda.
Að neðan er bréfið frá Auði, það er gott dæmi um móralinn sem nú er innan hundaheimsins. Þetta bréf er frá virtum ræktanda og reyndum. Þetta á að vera skemmtilegt en er það alls ekki. Ég var einmitt að tala um það við hann Dóra vin minn um daginn hvað þetta væri sorglegt og að maður hefði bara enga ánægju af þessu þegar þetta væri svona.
Sæl Berglind.
Takk fyrir að" samgleðjast "og vera svona mikill sérfræðingur eftir að hafa átt Labrador í heil tvö ár. Gaman að vita hvað þú hefur farið á margar hundasýningar á æfinni Berglind mín og hvað þú hefur séð marga Labba erlendis... Auðvitað eru alltaf misjafn smekkur manna á tegundinni. Það voru margar fallegar tíkur og rakkar á sýningunni sem eiga vonandi eftir að gera að það gott á sýningum í framtíðinni. En á þessari sýningu var það hún Tíbráar Tinda Serena Sól okkar sem vann tíkurnar og varð líka BHT 1 með sitt annað meistarastig og fyrsta CACIB og gerði svo enn betur og náði flottum árangri í tegundarhópnum og varð þar í þriðja sæti sem er frábær árangur í svona sterkum th. Ég veit ekki betur en að ég hafi óskað þér til hamingju og samglaðst þér þegar að Nótt þinni gekk vel á Fossártúni:) Og eitt verðum við að muna og að vita að það er enginn hundur gallalaus hvorki Nótt né Serena Sól :) Besti karlhndurinn hann Texas er líka gullfallegur Labbastrákur sem á örugglega eftir að gera það gott í framtíðinni enda ungur að árum.
Ég óska þér góðs gengis í framtíðinni kæra Berglind og gangi þér allt í haginn.
Með bestu kveðju Auður og Tíbráar Tinda voffar sem eru í sigurvímu :):)

Berglind Gestsdottir