Styttist í sprautu nr 2.
30. september 2008 klukkan 09:39
Kæra hvolpafólk.
Það styttist í næstu sprautu hjá hvolpunum. Reynið að fara með þá innan tímarammans. Það er mikilvægt.
Munið að hvolparnir geta orðið slenaðir eftir sprautuna í einhverja klukkutíma. Fyrsta sprautan virtist ekkert segja til sín, en það er alltaf gott að hafa það á bak við eyrað að þeir geti orðið eitthvað slappir.
Ég vona að þið séuð nú öll að komast yfir aðlögunarhjallann, og það sé komin góð rútína hjá ykkur öllum....allir séu búnir að finna taktinn :)
Hafið það rosa gott í dag......allt í einu kom þetta kalda haust. En þá klæðum við okkur bara betur, og náum okkur í rósrauðar kinnar og hressandi göngutúra með hundana okkar og tæmum hugann. Það er fátt eins gott og góður göngutúr með sjálfri/sjálfum sér og hundinum sínum,þegar allt er að fara til helvítis í þjóðfélaginu. Maður hreinlega gleymir þessu um stund og nýtur andartaksins. Fögnum haustinu. :)

Berglind Gestsdottir

ÉG er búin að fá tíma í sprautu fyrir Vetur á föstud. nk. Það gengur mjög vel hann er farinn að gerir sínar þarfir úti algjör moli .Hann er orðin 10kg. algjör prins, hann er alltaf smá vælinn á nóttinni og vill fara út að pissa og í nótt lagðist hann bara á pallin að slappa af en það var ekki í boði heheeh.
Kveðja Kristín og Co.