VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Kalt.

01. október 2008 klukkan 09:18
Já það skall á í gær haustið! Gaman að heyra frá ykkur öllum að það gengur vel. Jú ,jú það getur tekið tíma að fatta að það eigi að pissa úti, og stjórn á
þvagblöðrunni er eitthvað sem þroskast rólega hjá litlum hvolpum eins og mannfólkinu. :)
Myrra takk fyrir myndirnar. Bræðurnir þrír eru svo sætir saman, og það er akki annað sjá en Bjarki sé búinn að taka Rökkva í sátt :)
Hvað ætli sé að frétta af Oliver hinum stóra (Oliver the great). Ætli vaxtarhraðinn sé alltaf sá sami :) Og Elías. Blessaður leyfðu honum Nóa að synda. Þú þarft ekki að synda með honum :). Labrador er fæddur með sundhæfileika sko ! Ég hefði viljað vera með ykkur þegar þú óðst út í á eftir honum. Vetur er vaxinn yfir höfuð Mána stóra bróður síns, Viska keppist við Mettu við pisseríið, og Von....er ofdekruð :), eins og ég vissi að hún yrði. Mér skilst að Brúnó sé hættur að þeyta sk. út um allan bíll...enda eins gott ef hann ætlar sér einhvern tímann að geta fengið að fara í Lexusinn :)
Ég þarf svo endilega að afla mér frétta af honum Valshamars - Verði. Mikið held ég að það sé hugsað vel um hann eins og alla hina. Njótið þið svo dagsins með voffunum ykkar! Og bestu kveðjur frá NÓTT, sem hefur tekið gleði sína á ný. Hún lítur svo vel út. Hún er nú komin í svona létt átak. Feldurinn er rosa fínn og held ég að það sé að þakka að ég passaði vel upp á hana næringarlega séð, þegar hún var hvolpafull og svo þegar hún var með hvolpana á spena. Um leið og þeir fóru setti ég hana á Myrra Coat, setti hana á Dermascent hárolíu kúr (fæst í Hundaheimum hjá henni Esther), og Udos oil, sem er flaxseed olía (dash út á matinn 1xá dag.) Ég er hægt og rólega að koma henni í form aftur. Við höfum mest verið á láglendi að spretta úr spori, en ég stefni á erfiðari göngur með hana jafnvel um helgina, þá upp í mót. Svo gaman að sjá hana taka á því. 
Berglind Gestsdottir