VISKA HRISTIR NÚ BARA HAUSINN YFIR ÞESSU ÖLLU SAMAN.
08. október 2008 klukkan 14:23
Þessi mynd er sniðug :) Hún Anna Mæja tók hana. Hvað getur maður annað gert þessa dagana en hrist hausinn.:)
Mér finnst ég svo rík að eiga hana Nótt núna. Vá hvað mér þykir vænt um hana......jú,jú og líka Tuma og köttinn og krakkana og kallinn. :) Maður má víst ekki gera upp á milli.
Það er svo merkilegt þegar erfiðleikar steðja að, og ég get sagt ykkur að það hefur reynt á það hjá mér, þá er eins og dýrin myndi skjaldborg í kringum mann, og efli varnirnar. Þessi skilyrðislausa ást, augnaráðið og nærveran, er svo ómetanleg. Ef ykkur líður illa, leitið þá til dýranna ykkar.............já og munið ÚT AÐ LABBA.
Hugsa til ykkar alla daga og sendi ykkur hlýja strauma :)
Berglind Gestsdottir

Yndisleg mynd og það er ekki annað hægt en að brosa yfir henni sem er dýrmætt þessa dagana yfir öllum þessum þjóðfélagsfréttum . Mæli líka með göngutúrunum og flotta gallanum og til þess að gera mann ennþá flottari, ---pokunum sem við dinglum með í hendinni stóran hluta af leiðinni eins og flottu veski frá Calvin Clein og þá er líka hægt að fá í ýmsum litum.
Kveðja María Þúfa og tröllastrákarnir í Lágholtinum