VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Oliver, Brúnó og Von

18. október 2008 klukkan 17:44
Vá hvað þetta er búið að vera fínn dagur. Við stelpurnar fórum í heimsókn á þrjá staði með ættbækurnar og tryggingaskírteinin.  Við byrjuðum hjá henni Von. Hún hefur það ljómandi gott, er yndislega falleg og góð. Hún og Tinna eru orðnar miklar vinkonur. Halldóra segir hana algjöra dekur rófu.

Þá var það að kíkja á hann Brúnó...............orkubolti sem þarf ákveðni og aga. :) Geysilega flottur rakki, greinilega elskaður út af lífinu :) 

Og að síðustu átti ég stefnumót við hann Smára sem á Oliver uppi við Hafravatn. Ég hef eiginlega haft mestar áhyggjur af því hvernig gengi með hann.........svo hef ég ekkert heyrt frá Smára lengi.
Viti menn. Oliver risinn og ruddinn í gotinu, er aaaaaaaaaalveg eins og pabbi sinn/Henry. Pollrólegur, stór og glæsilegur. Þvílíkt jafnaðargeð. Ég eiginlega trúði ekki mínum eigin augum.

Ég hef hlakkað til þessa dags lengi, og ég varð sko ekki fyrir vonbrigðum. Flottu hvolparnir mínir. :)
Næst er að heimsækja General Patton, Rökkva,Nóa, Visku og Vetur. Bara skemmtilegt.
Berglind Gestsdottir
María Birna
 
hæ.Berglind

Innilega sammála þér um Leirur. Hef sjálf lent í þessu með gamla setter tík sem ég átti einu sinni og þá sagði dóttir mín öllum að við hefðum verið að leysa Heru út úr hundaFANGELSI sem er réttnefni yfir staðinn og var veslings hundurinn niðurbrotin í langan tíma á eftir og ég líka. Alltaf gaman að lesa síðuna þína og vekur hún mann til umhugsunar um gagnleg málefni sem viðkrmur hundum og hundamenningu.

kær kveðja María, Þúfa og tröllastrákarnir í Lágholtinu.
19. október 2008 klukkan 01:30
Hæ systir kær, gamla tíkin hennar Halldóru heitir Nína ;) ekki Tinna. knús og koss
21. október 2008 klukkan 00:23
Halldóra, Óli , Kristófer, Nína og Von
 
Sæl og blessuð
Það var líka rosalega gaman að hitta ykkur og sýna ykkur hversu falleg og yndisleg hún Von okkar er - og hversu góðar vinkonur þær Nína eru ;-)

Eins gott þið komuð og minntuð okkur á sprautuna - en Von fór í sprautuna í dag og dýralæknirinn var mjög ánægður með hana ;-) en hún vill að hún fari í þriðju sprautuna til öryggis - eftir mánuð.

Þið eruð alltaf velkomin í heimsókn og við biðjum að heilsa öllum.

kær kveðja
Halldóra, Óli, Kristó, Nína og Von
21. október 2008 klukkan 21:15
hvað er að frétta, allt í rólegheitum?
Veit ekki hvaða nágranna þú varst að tala um í póstinum?

kv. Agla
27. október 2008 klukkan 23:22

Skrifa athugasemd