Jólastjarnan ..........blómiđ er eitur fyrir hunda.
23. nóvember 2008 klukkan 00:02
Já nú væri gaman ef það væri sýning. Drottingin er í sínum fallegasta feldi.
Í dag vorum við "mæðgurnar" heillengi í garðinum að snyrta til. Það var auðvitað leikið inn á milli með bolta og svoleiðis dótarí.
Já og svo styttist í jólin og það ótrúlega gerðist í dag. Við jólaskreyttum, og settum jólaseríu á húsið að utan. Ég bjó svo til þennan undurfallega ;) krans á útihurðina úr könglum og dótaríi sem ég átti hér heima....kallaði hann kreppukrans. Þá er bara eftir að skreyta jólatréð sem bíður betri tíma.
Og eitt gott fólk..........ef ég man rétt þá er JÓLASTJARNAN (blómið) eitruð jurt fyrir hunda.Mörg blóm eru góð að japla á, og jólastjarnan örugglega bragðgóð en eitruð er hún! ´
Hvernig væri nú að kvitta fyrir komuna, mikið þætti mér vænt um það. Og svo skal ég lofa að vera duglegri að skrifa.
Já og setja inn nýjar myndir.

Berglind Gestsdottir

Guð hvað þú ert dugleg búin að setja jólaljósin ég þarf að fara að ath. hvar mín eru eftir flutningana hehe. Annars er allt gott að frétta héðan úr krepunni við erum en með vinnu sem betur fer, en ekki búin að selja annað húsið maður verður bara að vera áfram bjartsýn að þetta fari allt að smella saman ekki satt??? Vetur hefurð það bara fínt hann er alveg að verða búinn með annan inniskóinn minn en svona er þetta ef maður er ekki með augun á honum finnur hann alltaf eitthvað til að gera. Bestu kveðjur frá okkur öllum í kef.
P.S. Þurfum að finna okkur tíma í góða göngu hér á suðurnesjonum ekki satt??