VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Hvanneyri og Borgarnes

29. nóvember 2008 klukkan 18:58

Við Nótt tókum daginn snemma og vorum komnar á Hvanneyri upp úr 11. Vá hvað það var falleg birta og landslagið í vetrarbúningi.Ég gerði ekki boð á undan mér, og kom að Hjalta í bólinu (Hvanneyri). Rökkvi/Vilji var líka í bólinu sínu..( búrinu) alveg salla rólegur. Myrra var í skólanum en kom fljótlega. Einnig dreif að skemmtilega nágranna þeirra, sem höfðu áhuga á að sjá mömmu Rökkva (Nóttina). Það var síðan mikið stuð á Nótt og Rökkva, þar sem þau léku sér úti hátt í klukkutíma. Veltu sér upp úr snjónum og ærsluðust.
Það var mjög gaman að koma til Myrru og Hjalta og sjá Rökkva í sínu umhverfi. Honum líður vel og fær fullt af athygli og ást. Rökkvi er fljótur að læra og afskaplega vel agaður miðað við 4 mánaða hvolpaskott.

Svo var það að heimsækja Vörð, eða General Patton eins og hann heitir, og er dags daglega kallaður Patti.
Patti er eign Sonju, en Patti heldur að Þórður eigi sig og eltir hann út um allt, og Þórður getur ekki þverfótað fyrir honum :) Patti er þó fljótur að setjast þegar Sonja tekur upp lifrarpylsuna. Þórður og Sonja segja Patta vera mjög óþekkan..........ég held að það skrifist eitthvað á, hvað þau eru GÓÐ við hann og ekki alveg sammála um uppeldið. Mér sýnist Patti og Brúnó vera líkir karakterar.........eða að þeir eigi mjög GÓÐA eigendur :)...þetta eru hvorutveggja mjög ákveðnir karakterar sem þurfa miiiiikinn aga.
Ég hefði helst viljað taka Patta með mér heim, mér fannst hann svo skemmtilegur og challenging karakter. En mér skilst á Sonju að hann fari hvergi. ;)
Á báðum stöðum fékk ég úrvals kaffi. Myrra hafði vakað fram á nótt við að baka ljúffengar smákkökur og  dýrindis konfekt fékk ég hjá Sonju og Þórði. Ég þakka frábærar móttökur og hlakka til að sjá ykkur aftur.

Berglind Gestsdottir
Myrra
 
Takk æðislega fyrir komuna:)
Það var æðislegt að fá ykkur og horfa á Nótt og Rökkva leika sér saman.

Kv. Myrra og strákarnir allir
29. nóvember 2008 klukkan 22:51

Skrifa athugasemd