VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Ţarna má sjá Nótt og Rökkva í miklum leik. Rökkvi er eins og "snjóhundur" :)

01. desember 2008 klukkan 09:56
Berglind Gestsdottir
hæ Berglind

Gaman að sjá myndir þarf að fara að senda þér af Vetri. Ég var að vikta hann í gær hann er 20kg. væri gaman að vita hvað hinir hvolparnir eru orðnir stórir og þungir :)

Kær kveðja
Kristín og Vetur
02. desember 2008 klukkan 11:04
Hæ hæ.

Af okkur er allt fínt að frétta. Viska stækkar og stækkar og stækkar, ætlar algerlega að verða eins og pabbi sinn. Hún er orðin 22 kíló, alger hlussa. Hún er svolítið óþekk og ekki alveg tilbúin að hlýða meðan litla hálfsystir hennar sem er 4 vikum yngri hlýðir næstum í einu og öllu. Svona geta þessir voffar verið mismunandi og eðlið ólíkt.

bestu kveðjur, Agla
02. desember 2008 klukkan 13:38
Skarpi og Pála og börn
 
Hæ hó,

langt síðan við höfum "bloggað"....

Brúnó er algjör brjálæðingur.... Hann hlýðir engum nema pabba sínum en er samt allur að koma til. Hann er svolítið mikill gaur og hoppar uppá alla sem er verið að venja hann af. Annars er hann (ef pabbi segir) farinn að setjast, liggja, bíða og hann borðar aldrei úr skálinni nema hann heyri "gjörðu svo vel" og þá er gjörsamlega ráðist á dallinn. Hann er orðinn 22kg og er algjör gullmoli. Hitti Labrador eiganda uppá Hvaleyravatni og hann sagði að við værum með svakalega fallegt eintak í höndunum... Bara vonandi að við náum að láta Ástu hundaþjálfara laga "gauraganginn" aðeins og þá erum við vonandi með næsta Henry....Erum að fara á námskeið í byrjun Janúar en það er búið að vera löng bið að komast að hjá henni..

kv
skarpi, pála og börn
04. desember 2008 klukkan 20:39

Skrifa athugasemd