LOKSINS!
Drottningin er að komast í fantaform. Víðir hefur verið að fara langa göngutúra með hana, og svo er hún í svolitlu aðhaldi matarlega. Sýningin framundan. Ég hef hreinlega ekki ákveðið hvort við verðum með. Ég hef það á tilfinningunni að það verði eitthvað dræmari mæting en oft áður, sem er skiljanlegt. Svo eru breyttar reglur með dómana. Rautt er excellent og 1.einkunn. Blátt very good og 2. einkunn. ..........Mig langar ekki í bláan
en kannski er það núna bara voða fínt
og allt í góðu. Kannski maður mæti bara og nái sér í einn bláan í safnið
.
En af öðru þá er allt fínt að frétta af hvolpunum. Þeir eru að vaxa vel upp. Ég mundi gjarnan vilja hitta hvolpana alla fljótlega til að sjá þá og vita hvort einhverjir ætla ekki að sýna.
Koma svo.
Nótt er núna á lóðaríi og ég er með hana í gjörgæslu fram að mánaðarmótum.
Hvað er annars að frétta af ykkur, sem kíkið alltaf hér inn. Endilega kvitta í gestabókina, já og TAKK þið sem kvittið 

Gaman að sjá að það er að koma líf í síðuna þína hehe. Ég er alveg til í hitting með hvolpana það væri bara gaman. Hvet alla til að finna tíma til að hittast. Vetur er alltaf jafn fjörugur og skemmtilegur,bara lang flottastur :)
Kveðja
Kristín og Co.