VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Nýtt labrador afbrigði á næstu sýningu

14. febrúar 2009 klukkan 23:07
Vá mér hefur gengið illa að láta hlutina ganga upp undanfarið. Það styttist skelfilega hratt í sýninguna. Og met þátttaka. maður hefði nú haldið að það yrði kannski eitthvað færra en venjulega, en það er frábært að það sé svona góð þátttaka. Auðvitað á maður að halda áfram að gera það sem er skemmtilegt þótt tímarnir séu vályndir. Annars er nú helst að segja frá því að ég mun að öllum líkindum sýna nýtt afbrigði af labrador. SKÖLLÓTTAN. Já Nótt hefur semsagt ákveðið að fella, eins og við Dóri segjum.........he,he, missa vetrarfeldinn, hratt og örugglega. Það er næstum þannig að í hvert skipti sem hún stendur upp, er eins og hún liggi ennþá á gólfinu........nei segi svona, en hvílík tímasetning.
Á morgun sunnudag, er sýningaþjálfun hjá Þórdísi Maríu, og viti menn........nú skal mér takast að mæta, með Nóttina.
Berglind Gestsdottir
Það er líka sýningarþjálfun í dag klst: 18-19 uppí Víðidal fyrir tegundahóp 8 ;-)

kv, Hildur María
15. febrúar 2009 klukkan 11:06
Guðbjörg GuðmundsdóttirGaman að hitta ykkur mæðgur í sýningaþjálfuninni áðan, mér fannst Nóttin bara sýna sig vel... stóð svo fínt :o) Ef hún er mikið að fella feld geturðu prófað að fara til dýralæknis og fengið vítamín sprautu fyrir hana .... það virkar fínt á kisurnar mínar....
15. febrúar 2009 klukkan 18:18

Skrifa athugasemd