Sýningarþjálfun
Of sein...........eins og venjulega. Í hendingskasti 15 mínútur í 1 eftir hádegið, lagði ég af stað......úr Mosó og lengra en í Sólheimakot. Einhvers staðar í Ártúnsbrekkunni varð mér hugsað til þess hvort ég hefði munað eftir HUNDINUM. Ég var jú með tauminn í framsætinu við hliðina á mér. Mér varð litið í baksýnis spegilinn og sá glitta í Nótt í skottinu. Ég mætti örlítið of seint ásamt fleirum....Það er hrikalega slæmt að mæta of seint á sýningaþjálfun. Reglan er að mæta helst til of snemma. Þá nær maður mesta galsanum úr hundinum áður en þjálfunin byrjar. En hið ótrúlega gerðist. Nótt sýndi sig bara rosalega vel, og Þórdís María var mjög ánægð með hana. Mér þótti erfitt að "dansa" með henni á skokkinu. Nótt vil helst bara fara mjööög hratt. Ég var á bremsunni sem þýddi blöðrur á hendurnar. Næst mæti ég með hanska....ég hugsa þetta alltaf, og gleymi því svo á milli. Alveg vonlaus.
En Þórdís María fær hrós fyrir sína frammistöðu. Mjög pró. og skemmtilegt hjá henni. Aðstaðan er líka flott, björt og skemmtileg. Þarna voru, t.d. hann Askur vinur okkar, og hann Imbir.......ég er alltaf voða svag fyrir honum. Hann er rosa flottur Briard. Ég fékk að prófa að hlaupa með hana Brögu sem er golden. Eigandi hennar er reynsluboltinn Sigríður Bíldal. Það var gaman að spjalla við Sigríði.
Ég var ákveðin í að kíkja á sýningarþjálfunina í Víðidalnum, en það gekk ekki upp hjá mér þennan daginn.
Kannski næst.

Nóttin stóð sig líka ofsalega vel sem og þú(",) Við sjáumst þá vonandi næsta sunnudag kl 13:00...