Kjarvalstaðir
21. febrúar 2009 klukkan 23:24
Við gerðumst menningarleg í dag og fórum á söfn. Það er skemmtilegt og kostar ekkert
. Það var fullt af fólki sem naut þess eins og við að skoða falleg listaverk.
Við byrjuðum á Kjarvalstöðum. Það var fyrirfram ákveðið að taka hundana með og viðra þá aðeins.
Fórum með nýja leikfangið með okkur, sem er algjör snilld. Við lékum við hundana í góða stund á Miklatúninu. og þeir fengu alveg víðáttubrjálæði. Vá það var gaman. Það var fyndið að sjá Tuma hlaupa jafn hratt og Nótt, nema hann þurfti að taka 500x fleiri skref til að halda í við hana. Veðrið var EKKI skemmtilegt. Íslenskt slagveður. Hundarnir fóru eftir það í bílinn og við kíktum inn á Kjarvalstaði. Síðan renndum við á Listasafn Reykjavíkur og svo heim.
Á morgun er það orkulosun með leikfanginu góða og eftir það kl. 13, sýningarþjálfun hjá henni Þórdísi Maríu.
PS. Guðbjörg! þú ert svo best og þið Askur yndislegust af öllum. Og hvað sem þú segir þá eruð þið bara flottust. Knús.
. Það var fullt af fólki sem naut þess eins og við að skoða falleg listaverk.Við byrjuðum á Kjarvalstöðum. Það var fyrirfram ákveðið að taka hundana með og viðra þá aðeins.
Fórum með nýja leikfangið með okkur, sem er algjör snilld. Við lékum við hundana í góða stund á Miklatúninu. og þeir fengu alveg víðáttubrjálæði. Vá það var gaman. Það var fyndið að sjá Tuma hlaupa jafn hratt og Nótt, nema hann þurfti að taka 500x fleiri skref til að halda í við hana. Veðrið var EKKI skemmtilegt. Íslenskt slagveður. Hundarnir fóru eftir það í bílinn og við kíktum inn á Kjarvalstaði. Síðan renndum við á Listasafn Reykjavíkur og svo heim.
Á morgun er það orkulosun með leikfanginu góða og eftir það kl. 13, sýningarþjálfun hjá henni Þórdísi Maríu.
PS. Guðbjörg! þú ert svo best og þið Askur yndislegust af öllum. Og hvað sem þú segir þá eruð þið bara flottust. Knús.
Berglind Gestsdottir
