1 dagur í sýningu
28. febrúar 2009 klukkan 13:29
Jæja þá er þetta að bresta á. Skottið var snyrt í dag, númerið, taumurinn, plastpoki og gotteríið er klárt, og svo tókum við smá æfingu. Dóri segir að það verði 18 tíkur í opna flokknum. Það þýðir þolinmæði og úthald, nema okkur verði hent út af strax. Ef það gerist þá ætla ég að vippa mér yfir og sjá Leonbergerinn og stóru,stóru hundana sýnda.
Ég óska öllum góðs gengis á morgun. Við gerum öll okkar besta. Meira er ekki hægt að fara fram á
ps. Dóri er eins og biluð plata við mig..........ÞÚ MÁTT EKKI SOFA YFIR ÞIG, ÞÚ MÁTT EKKI SOFA YFIR ÞIG. .....sælla minningar eða hitt þó, þá missti ég af tveimur sýningum út af því að ég SVAF YFIR MIG, en það var í hvolpaflokkunum og þeir eru svo snemma dags. Ég hefði getað grátið ég var svo svekkt út í sjálfa mig. En maður lærir af reynslunni eins og alltaf.
Njótið dagsins í dag, hann er sólríkur og fallegur.

Berglind Gestsdottir

Kv, Hildur María