Eyrun duttu af mér
05. mars 2009 klukkan 00:04
Fallegur dagur. Sólskin og heiðskírt. Ég þarf enga húfu hugsaði ég um leið og ég labbaði út með hundana. Gekk fyrir hornið og eyrun duttu af mér. KULDINN. Það var vindur og örugglega 50 C frost. Ég get hreint svarið það. Göngutúrinn styttist verulega og breyttist eiginlega þannig að ég stóð undan vindi með hettuna á hausnum og lét Nótt í sækivinnu með leikfanginu góða. Ég hélt þetta út í hálftíma og hún fékk sko að hlaupa....ég var með vettlinga, annars gæti ég ekki skrifað þessar línur
. Vonandi höfðuð þið það gott. í dag.
. Vonandi höfðuð þið það gott. í dag.
Berglind Gestsdottir
