AÐ HEIÐRA HUNDINN SINN.
Við fórum i klukkustundar göngu inn í Varmadal. Svo í 15 mínútna afslappaða taumgöngu, og að lokum 20 mínútna orkulosun með leikfanginu góða. Ansi gott bara. Nú er samviskan gagnvart Nóttinni minni í lagi...ég hef heiðrað hundinn minn.
. Að loknum skylduhúsverkum og móttöku barnanna úr skólanum, ætla ég á vit alheimsvefsins að lesa mér til um hunda og heimsækja heimasíður vina minna og annarra. Tónlistin í eyrunum verður MUSE
Fyrst var þó að baða Nóttina því hún lyktaði VÆGAST illa eftir ferðina. Í kjölfarið fylgdi mikil og ítarleg burstun því feldlosið er yfirgengilegt þessa dagana. Ég tók mynd af hrúgunni sem ég tók af henni í þetta sinn, og er búin að vera að gera þetta vikulega........og umfangið svona til að þið getið ýmindað ykkur eitthvað........svona eins og eitt stykki pomeranian.
