VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Hva! ertu ekki að fara út með mig.......

25. mars 2009 klukkan 16:48

Dagurinn hefst alltaf eins 07, hafragrautur og allt það, nema í dag bakaði ég marmaraköku handa mannskapnum. Ákvað að fara út með Nótt seinni partinn í dag, þar sem ég fór við jarðaför kl. 13.
Mér finnst alltaf gott að fara út í smá orkulosun, þegar reynir á.
Nótt reyndar varð svaka bjartsýn og vaggaði af gleði, þegar ég fór að taka mig til fyrir jarðaförina. Henni fannst ég þó greinilega eitthvað skrýtin til fara og skótauið öðruvísi en í gær, sem sagt ekki gúmmístígvél, en það má alltaf gera sér vonir.....hún hefur líklega haldið að ég hafi tekið svo nærri mér athugasemdinni frá Arnóri að ég hafi ákveðið að fara hér eftir út í sparifötunumCool.....Right! Nú er semsagt að koma sér úr dressinu og háu hælunum í druslurnar, og útLaughing Við taumgengum.....veit ykkur finnst nóg talað um þessar taumgöngur hjá mér, en ég segi það og stend við það, það veitir ekki af. Já við taumgengum niður að félagsheimili.......elska að búa í sveit (félagsheimilið ,he,he). Og þar fékk hún að hlaupa frjáls og eltast við boltann. Ég stóð álengdar og fylgdist með henni, klædd eins og idiot...whats newCool með STÓR headphones á hausnum, með MUSE í Ipodnum, hátt stillt, og svo söng ég fagurlega með að mér fannst Cool Mér fannst ég vera í himnaríkiLaughing Líklega er ég heppin að löggan átti ekki leið hjá. Þyrfti að fá einhvern til að taka mynd af mér í dressinu, kannski ég verði bara TREND SETTERCool

 

Berglind Gestsdottir

Skrifa athugasemd