VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Ferð í höfuðstaðinn

26. mars 2009 klukkan 08:52
Góðan DAGINN!...... Ég fór gjörsamlega öfugt fram úr í morgunn. Hrikalega illa sofin og grumpy. Ég held nefnilega að annað veifið sofi ég við hliðina á traktori sem er í gangi.Undecided Uppástunga eiganda hljóðanna var.....af hverju sefurðu bara ekki með MUSE í eyrunumLaughing. Get svarið að það er bara BRILLIANT hugmynd. En þeir spila nú ekki alveg kannski þá róandi músik sem þarf til að koma manni í gegnum nóttina. Cool EN VÁ hvað þetta er GOTT band. Framundan er stefnumót í höfuðstaðnum. Ég þarf að skutla og bíða í ca 60 mínútur. Tilvalin tilbreyting fyrir Nótt að komast í göngutúr í öðru byggðarlagi. En mikið asskoti er kalt í dag.

Annars þá kom ég við í Kringlunni í gær á leiðinni heim úr jarðaförinni. Það var lítið af fólki þar, og mér fannst ALLT sem ég skoðaði kosta yfir 20.þúsund. Mér fannst hreinlega allt alveg hrikalega dýrt.Undecided Buddan komst ósnert út úr þessu gímaldi. Áveðin í að kíkja á konukvöldið í Smáralind og taka Unni ungling með mér, hana er farið að vanta hversdagsskó. Við vorum seint á ferð......um kl. 22 og það var brjálað að gera. Þar sem Unnur unglingur á geysilega erfitt með að vera inni í verslunargímöldum, hún hreinlega fær öll einkenni veikinda,líkamleg og andleg af erfiðum toga í hvert sinn......þá forðumst við verslunarferðir. Með hana þá er yfirleitt best að vera með fastmótaðar hugmyndir af því sem hún vill, svo hægt sé að fara í sem fæstar verslanir. Okkur tókst það í gær. Hana langaði í adidas strigaskó með röndum, svona hvíta með svörtum röndum, eins og ég held að við flest sem erum á fertugsaldrinum áttum á sínum tíma. Unglingaskór kosta peninga. Ég er svo LÁNSÖM að Unnur  eltist ekki við tískubylgjur Hefur sjálfstæðan smekk og er flott. Við keyptum sem sagt skó sem kostuðu 6000, en ekki eitthvert tískufyrirbrigði sem kosta í dag 16000.Smile Buddan og ég brostum hringinn. Og Unnur ALSÆL í nýju Adidas skónum sínum.

Jæja þá er göngutúr dagsins lokið...hann endaði uppi á dýraspítala!  Við Nótt fórum í göngutúr meðfram Sæbrautinni og hófum ferðina við húsið hans Hrafns Gunnlaugssonar (annað hvort okkar, ég eða hann höfum vondan smekk )Cool og gengum út að Viðeyjarferju. Ágætis spölur. Fórum fjöruna og allt saman. Þegar Nótt stökk út úr bílnum, þá fannst mér votta fyrir helti, en hún var svo spennt að komast á nýjar slóðir, að ég ákvað að fylgjast með ástandinu. Þetta virtist í lagi út að Ferju. Svo kastaði ég fyrir hana boltanum og hún sótti, og sótti á bakaleiðinni...þannig að hún hljóp þess að leið eiginlega þrisvar...hvað ætli það sé í km? Á baka leiðinni tók ég eftir blóð slóðinni eftir hana. Nú það er semsagt eitthvað í gangi hugsaði égUndecided Renndi upp á dýraspítala í Víðidalnum og hitti fyrir Hildigunni dýralækni, hún er alveg frábær. Fyrst skelltum við Nótt á vigt........37 kg takk.Hún er og verður stór. Svo skoðaði hún Nótt í bak og fyrir,ég var ánægð með það. Það kom svo í ljós að göngutúrarnir okkar eru svo brutal að Nótt er búin að spæna upp á sér þófunum og það blæðir hún henni ræflinum. Jæja hugsaði ég......þar lýkur fínu göngutúrunum okkar. En nei,nei. Fékk fyrirmæli um brúnsápu fótabað, og keypti vax sem á að bera á þófana fyrir og eftir göngutúra. Ef hún lagast ekki þá þarf hún að fá SKÓ...meðan bágtið grærEmbarassed. Það yrði til að toppa á okkur lookið.  Nótt fékk Parvo og lifrarbólgubólusetningu. (Þetta nýja bóluefni er sterkara en það gamla og við gætum átt von á hita eða niðurgangi hjá dömunni)
Nótt fékk líka ormalyf.
Berglind Gestsdottir
Unnur Freyja
 
já það er stundum gott að vera öðruvísi :D
takk fyrir skóna og allt mamma! *koss og knús*
06. júní 2009 klukkan 00:05

Skrifa athugasemd