VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Dýrt

02. apríl 2009 klukkan 09:53
Jæja góðan daginn. Það hafa nú þegar 7 kíkt inn á síðuna í dag........hverjir ætli allt þetta fólk sé..friends
or fo'sUndecided. Mér þykir eiginlega verst að ég skuli ekki standa mig betur í blogginu. Vakna kl. 06, þá hljóta þessir 7 að fá nýjustu færsluna strax.  Annars er ég afskaplega glöð og þakklát yfir öllum heimsóknunum. HREFNA HE,HE, TAKK FYRIR KVITTIÐ,ÞÚ ER SEMSAGT FASTAGESTUR, BARA ÆÐISLEGT. TAKK FYRIR ÞAÐ. FLEIRI!!!!

Ég skipti um fóður fyrir að verða mánuði síðan hjá Nótt, en hef nú ákveðið að svissa aftur yfir í það sem ég var með. Ég held að feldlosið yfirgengilega undanfarið sé maturinn. Hún hefur aldrei farið í svona mikið feldlos og lyktin af henni bæði innan og utan eins og af  þorski  Ég og ryksugan erum líka að fríka út. Og þar hafiði það.
Mér leist rosalega vel á þetta fæði og gekk vel til að byrja með. Ég veit af mörgum labradorum og öðrum hundategundum sem eru á þessu og hingað til hefur það gengið vel. Ég hef gefist upp. Ég ætla að borga helmingi meira fyrir matinn, og þurfa að ryksuga sjaldnar.......þ.e. ekki tvisvar á dag.Cool og eiga vel lyktandi hund.
Annars var umræða á hundasíðu í gær,þar sem verið var að ræða hversu oft fók týnir upp eftir hundana sína úrganginn. Mér varð eiginlega óglatt. Ég stend og bíð tilbúin með pokann. Ég skil ekki hvernig fólk getur hugsað sér að hafa þetta liggjandi í kringum húsið sitt. OJ.Yell
Ég hef komið í hús þar sem garðurinn var útataður í skít. Ég varð gjörsamlega kjaftstopp. Sóðaskapurinn.

Svo kíkti ég í Smáralindina í gær. Stuttermabolir á konur í Zöru...sem á að vera ódýr verslun kosta 3000 kall.
Vá hugsaði ég og gekk út. Fór í Name it sem á að vera með góð verð, og ætlaði að sjá hvort einhverjir sætir stuttermabolir væru komnir á V öku 6 ára.......jú komnir kostuðu 3000 kall! Finnst ykkur þetta hægt 3000 kall fyrir barna stuttermabol.
Nóg komið af röfli.
Njótið dagsins, alveg að koma helgi og páskafríið að byrja hjá börnunum, get sagt ykkur að það ríkir gleði á mínum bæ.

Við fórum í HRESSANDI slagveðurs göngutúr. Nótt finnast göngutúrarnir því skemmtilegri eftir því sem veðrið er verra....við erum ekki alveg sammála þar.
Framundan hjá mér er kvöldvakt, vonast eftir rólegheitum í kvöld. Þó veit maður aldrei hvað gerist.

Berglind Gestsdottir
Bryndís
 
Bara að kvitta fyrir mig... kveðjur í bæinn.
Bryndís, Milla systir og Embla

ps. Mínar eru á íslenska fóðrinu, hárlosið er bara svipað, en meiri lykt af þeim (fitu)
02. apríl 2009 klukkan 11:45

Skrifa athugasemd