VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Vorboðinn ljúfi

04. apríl 2009 klukkan 11:18

Góðan og glaðanSmile Hjá okkur er það vorboði þegar við förum fyrstu ferð sumarsins í bústaðinn okkar í Eilífsdal í Kjós. Hann erfði ég eftir foreldra mína og er orðinn 36 ára gamall. Yndislegur bústaður. Ekkert rafmagn, vatnið úr fjallinu, gasofn og kertaljós. Okkur finnst yndislegt að fara úr öllum sjálfsagða lúxusnum í sveitina.
Mig langar í kamínu.......ef þið vitið af einni  sem rykfellur einhvers staðar þá endilega látið mig vita. Þegar ég var lítil var arinn í bústaðnum. Ég sat tímunum saman á gólfinu með bók við ofninn og lét hitann verma og lyktin frá birkinu sem brann var svo góð. Nótt nýtur sín vel í Kjósinni. Frjáls eins og fuglinn.Laughing
Hafið það gott um helgina.

Berglind Gestsdottir
Ég skal reyna að standa mig betur í blogginu.... öfunda þig að vera í sveitini, við þurfum að fara að fara í Lækjarbakka (bústaður fjölskyldu Gunna) sem er líka í Kjósinni, bara niðri við sjó :o) Við Askur og Frosti eru sko alveg til í að hitta ykkur Vöku og Nótt....
04. apríl 2009 klukkan 17:43
og Tumi.... gleymi honum alltaf greyinu litla
04. apríl 2009 klukkan 17:44
Æðislegt að vera í kjósinni það eru engar íkjur kv
05. apríl 2009 klukkan 00:01

Skrifa athugasemd