VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Með fjórar fætur og skott!

06. apríl 2009 klukkan 19:36
Bið ykkur að afsaka hvað ég er sein! Mér gekk alls ekki hvorki að kveikja né slökkva á tölvunni minni í gær. Ég í gremjukasti og óþolinmæði var staðráðin í að rjúka með tölvuna í viðgerð á leiðinni heim úr vinnunni í dag klukkan 16/morgunvakt. Ekki vildi betur til en svo, að ég gleymdi tölvunni auðvitað heima.Yell
Ég hringdi heim um miðjan dag, til að heyra í krökkunum og spurði af gömlum vana hvað þau væru að gera. Gauti sagðist bara vera í tölvunni. Hvaða tölvu spyr ég? Nú þinni segir Gauti. MINNI!!!!!!!!! En hún er steindauð.
Hvernig fórstu að því að laga hana? spurði ég. Og strákurinn svaraði.........Ég bara kveikti á henniEmbarassed
Svo var það í hádeginu í vinnunni í dag, að talið barst eitthvað að hundum. Ein er að tala um hund sem einhver önnur átti og ég spyr...........hvaða tegund er það? UHHHHHHHH! segir þá hin.....svona með FJÓRAR LAPPIR OG SKOTT.Laughing Þetta fannst mér alveg hrikalega fyndið.
Annars fórum við Nótt í sundtúr í gær. Hún þræddi Varmána fram og til baka. Hún var nefnilega að eignast nýtt leikfang........Munið þið eftir litlu gulu hænunni..........það er ekki hún, heldur LITLA REITTA HÆNAN.Laughing Gúmmíhæna með tístu, sem ég keypti í RL. Oh Nótt var svo flott þar sem hún dembdi sér á eftir hænunni út í ánna, trekk í trekk, og tók hana SVO varlega í kjaftinn og færði mér hænuna. Þvílíkur veiði talent.Kiss ELSKANA. Á leiðinni til baka varð ég á undan Nótt að koma auga á Sankti Bernhards "hitting"....svona 5 stk eða svo og laus Schafer. Ég náði að setja mig í sjóskíða stellinguna....þ.e. Báðar hendur fast á tauminn og stíga svo fast í báða hælana og beygja mig í hnjánum. ÉG VAR TILBÚIN........Bendi ykkur á að við erum að tala um sekúndubrot..... og Nótt kom auga á þá, og vildi LEIKA! og lagði í hann........næstum 40 kílóin þrefaldast og verða 120 þegar hún spyrnir í, en ég er nú aaaaaðeins léttari, og þess vegna er mikilvægt að vera tilbúin. Sjáiði þetta fyrir ykkur. Shafer kom á fleygiferð að okkur, en sem betur fer voru hinir STÓRU í taumi og draup ekki af þeim. Þetta fór allt vel, eins og alltaf. Lífið er ævintýri, og enginn dagur eins.Wink

Berglind Gestsdottir
unnur
 
oh það var svo sérstakt að sjá þessa stóru stóru hunda alla saman þarna á grasinu :O!
07. apríl 2009 klukkan 13:41

Skrifa athugasemd