Brá!
08. apríl 2009 klukkan 00:21
Já mér brá þegar ég kom heim eftir kvöldvaktina. Nótt beið ekki við gluggann, eða kom hlaupandi þegar ég opnaði hurðina. Hún lá í bælinu sínu. Við fórum í góðan göngutúr í dag. Ekkert óvanalegt, nema B-stykkið í mýkra lagi. Hún hljóp og lék eins og hún er vön. Ég fór síðan í vinnuna. Hún fékk að vera áfram úti, en bundin, og horfa á krakkana leika. Unnur settist svo líka hjá henni og las bók, veðrið var svo milt og gott. Í kvöld ældi hún 1x, og eftir það lá hún. Hún er dauf til augnanna greyið og ólík sjálfri sér. Hún mun sofa á gólfinu við hlið mér í nótt. Ég hef áhyggjur.
Berglind Gestsdottir

Varð að sýna þér að ég hugsaði til þín, gangi ykkur vel.
Kv. Silla