Gaman
Ég held að nú sé komið vor. Maður vaknar skælbrosandi og sprettur á fætur, það er orðið svo bjart eldsnemma á morgnana. Ég var á morgunvakt, þannig að Nótt þurfti að bíða eftir mér til kl. 16. Þá fórum við út, og viti menn........okkur tókst að týna TVEIMUR boltum á no time! Við erum snillingar í þessu. Við vorum með leikfangið góða og tvo nýja bolta sem ég keypti í GÆR!. Við erum búin að glopra alla vega 6 boltum. Finnst ykkur þetta hægt!. Sædís systir er búin að eiga sitt leikfang fyrir Aþenu lengur en ég og hún er ennþá með FYRSTA boltann. Okkar lenda í toppum 6 metra grenitrjáa, eða bara hreinlega GUFA UPP.
Algjörlega óskiljanlegt. Nótt finnst við vera glataðir kastarar, he,he.
Á morgun á ég frí. Ætli ég skreppi ekki og kaupi eitt stykki bolta. Svo lofaði ég Aþenu að kaupa handa henni litla reitta hænu, eins og Nótt á, og grípa eina handa Vetri í leiðinni 
