Aftur að koma helgi........er lífið ekki dásamlegt
Föstudagurinn runnin upp. Ég á frí í dag. Það er svoo gott að eiga frí. Planið er að fara í RL og versla dótið sem ég nefndi í gær. Láta skoða bílinn og að sjálfsögðu fara út með hundana. Seinni partinn er mikill spenningur yfir því að heimsækja Sædísi systur og co, sem voru að flytja í bæinn. Nótt og Tumi koma með til að hitta Aþenu. Kannski við förum bara aftur þá í göngutúr um nýja hverfið þeirra að skoða.
Vitiði hvað þarf marga til að koma Nótt á vigtina hjá dýra
.......hún er nefnilega eins og við hinar dömurnar,viljum ekki sjá vigtar., he,he. Það þarf minnst tvo fullorðna til að koma henni á vigtina, hún spyrnir bara í og segir, NEI ÉG VIL EKKI...........úff en hún hlýtur að hafa misst einhver kíló eftir allt þetta feldlos.
Verið góð við hvert annað og gerið eitthvað skemmtilegt um helgina. 
