Viðrun
20. apríl 2009 klukkan 13:05
Búnar að viðra okkur í dag. Það kenndi ýmissa grasa í göngutúrnum og illa innrættir hefðu getað stórgrætt. Alls konar flottir sleðar og kerrur og hvaðeina eins og hráviði út um allt, eftir storminn í gær.......sagði ykkur það við hefðum verið í stór hættu
og ég tala ekki um boltana. Nótt var fyndin, Við vorum með leikfangið góða með okkur, og það nýjasta hjá henni er að bera boltann. Það var svo skondið að sjá hana vandræðast í því að taka einn bolta en skilja okkar eftir, hætta svo við, taka sinn bolta og skokka áfram.
Ég var eitthvað að glugga í hundaspjallið og sé að það eru fleiri en ég að koksa á feldlosinu þessa dagana.
Ég fór nú að ráðum Guðbjargar vinkonu minnar og skrapp í Víðidalinn og fékk vítamínsprautu fyrir Nótt. Bara svona boost. Ég er orðin nokkuð viss um að ég rústaði á henni feldinum með því að prófa Iceland Pet.(allt of mikið prótein, og þetta fiskimjöl.....jukk) Það hentar henni engan veginn, þótt það henti örugglega einhverju öðrum. Ég er aftur farin að gefa henni ProPac og veit að á því er ég örugg með hana. Annars finnst mér feldlosið í rénum, og feldurinn að ná fyrri glans. Þetta gengur allt yfir, bara leiðinlegt meðan á því stendur.
Ég er áskrifandi að fréttabréfi frá Cesar Millan. Núna var hann að hvetja fólk til þess að hafa hundana sína merkta. Ég er sammála. Þetta er geysilega mikilvægt, og minnkar líkurnar talsvert að hundurinn lendi hjá hundafangaranum, með svimandi háu lausnargjaldi osfrv. svo ekki sé minnst á skelfinguna hjá manni sjálfum að týna hundinum. Þannig! merktu hundinn þinn, símanúmerið þitt er það mikilvægasta.
og ég tala ekki um boltana. Nótt var fyndin, Við vorum með leikfangið góða með okkur, og það nýjasta hjá henni er að bera boltann. Það var svo skondið að sjá hana vandræðast í því að taka einn bolta en skilja okkar eftir, hætta svo við, taka sinn bolta og skokka áfram.Ég var eitthvað að glugga í hundaspjallið og sé að það eru fleiri en ég að koksa á feldlosinu þessa dagana.
Ég fór nú að ráðum Guðbjargar vinkonu minnar og skrapp í Víðidalinn og fékk vítamínsprautu fyrir Nótt. Bara svona boost. Ég er orðin nokkuð viss um að ég rústaði á henni feldinum með því að prófa Iceland Pet.(allt of mikið prótein, og þetta fiskimjöl.....jukk) Það hentar henni engan veginn, þótt það henti örugglega einhverju öðrum. Ég er aftur farin að gefa henni ProPac og veit að á því er ég örugg með hana. Annars finnst mér feldlosið í rénum, og feldurinn að ná fyrri glans. Þetta gengur allt yfir, bara leiðinlegt meðan á því stendur. Ég er áskrifandi að fréttabréfi frá Cesar Millan. Núna var hann að hvetja fólk til þess að hafa hundana sína merkta. Ég er sammála. Þetta er geysilega mikilvægt, og minnkar líkurnar talsvert að hundurinn lendi hjá hundafangaranum, með svimandi háu lausnargjaldi osfrv. svo ekki sé minnst á skelfinguna hjá manni sjálfum að týna hundinum. Þannig! merktu hundinn þinn, símanúmerið þitt er það mikilvægasta.
Berglind Gestsdottir

Vildi bara benda á að það er ekki fiskimjöl í þessu íslenska fóðri og heldur ekk mikið prótein í því ;-) En það inniheldur harðfiskduft sem er unnið úr íslenskum fiski. Hrápróteinið er um 20% sem ku ekki vera mikið. Fiskur inniheldur eitt auðmeltanlegasta prótein sem fyrir finnst og er það mjög auðmeltanlegt.
Hér er hægt að lesa sér til um innihald í Iceland Pet fóðrinu... http://www.ifex.is/?item=16&v=item :-)
Kær kveðja,
Hildur María