VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Lifandi

22. apríl 2009 klukkan 10:57
Jú,jú, við erum lifandi.Ég var búin að skrifa þvílíka færslu í gær. Ég er svo reið út af ástandinu hérna á landinu og tíminn að hlaupa frá okkur........ég var hreinlega að missa mig í gær ég var svo fúl. Þannig að það borgaði sig ekkert að vera að birta mínar leiðinda pælingar.
Annars var gærdagurinn mjög skemmtilegur. Ég var í bóklegum og verklegum kúrs í VIÐBRÖGÐUM VIÐ BRÁÐATILFELLUM UTAN SJÚKRAHÚSA. Jamm, ég hreinlega elska allt sem heitir BRÁÐA eitthvað......ég er BRÁÐA-HJÚKKA.   Ég kom heim um kl. 16, alveg búin að bræða úr heilanum og hjartahnoða út í eitt. Ég ákvað að hafa bara góða súpu og heimabökuð skinkuhorn í kvöldmat. Henti saman í hornin, lét deigið hefast og á meðan lagðist ég aðeins í sófann............Nótt var mætt med det samme og rétti mér ofur varfærnislega hænuna sína reittu, sem þýðir bara ÚT AÐ LEIKA NÚNA!.........neiiii get ekki sagði ég við hana. Kannski á eftir. Og ég drattaðist til þess eftir kvöldmat að fara út, og vá hvað ég er fegin núna að ég dreif mig. Ef það verður eitthvað út í dag, þá verður það STUTT.
Berglind Gestsdottir
Þá er bara að kjósa rétt vona að þú sérst ekki sj......... kona
En alltaf gaman að lesa kv
22. apríl 2009 klukkan 21:02

Skrifa athugasemd