VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Svo holdvotar

23. apríl 2009 klukkan 18:38
Hvað er betra á sumardaginn fyrsta en hellirigningLaughing Ég ákvað að bíða frameftir degi með að fara út með Nótt, og tók þess í stað húsið í gegn. Það tekur alveg 4 tíma minnst. Nú klukkan sex var minn gálgafrestur útrunnin.Cool
Ég skellti mér í gallann, fann ipodinn, risa heyrnatólin mín og gerði hundana klára. Um leið og við gengum út bætti þvílíkt í rigninguna, eins og hún hafi haldið aftur af sér þangað til ég mundi birtast. Það var til lítils að fást um það og er rigningin ekki bara góð? Ég varð strax alveg holdvot og hundarnir líka. Ég var orðin svo blaut að mig langaði helst til að stelast til að hoppa í pollunum eins og smákrakki. Vá það var freisting. Við komum semsagt heim eins og hundar af sundi.
Berglind Gestsdottir

Skrifa athugasemd