VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Sækivinna í vatni.

26. apríl 2009 klukkan 18:31
Víðir ákvað í dag að fara í hjólreiðatúr. Ég keyrði hann að Stardalnum og skildi hann þar eftir. Ég tók hundana með mér og ákvað að nýta ferðina í góða göngu. Við fundum stórt vatn sem ég held að Leirvogsáin renni frá.
Nótt var í miklu stuði og við með boltann með okkur. Vatnið er djúpt strax frá bakkanum, þannig að Nótt þurfti strax að taka á því. Þarna líkaði henni lífið. Að synda er örugglega BESTA hreyfing fyrir vöðva hundsins. Við gengum síðan meðfram ánni og á því svæði tókst okkur að týna boltanum............einu sinni ennCool Á myndinni að ofan situr Nótt á árbakkanum og syrgir boltann sinn. Hún leitaði LENGI að honum.
Veðrið dásamlegt. Þegar heim var komið fékk Nótt að láta sig þorna í sólinni úti við. Ég tók eina umferð með burstann á hana.

Ég er harð ákveðin að fara aftur upp að þessu vatni, helst tvisvar í viku og láta hana synda.
PS. Ég setti inn myndir úr ferðinni okkar.Laughing
Berglind Gestsdottir

Skrifa athugasemd