Út í rigninguna
29. apríl 2009 klukkan 22:40
Þreif húsið í dag.........mér finnst ég alltaf vera að þrífa
Það var svo hrikalega mikið rok, að ég ákvað að bíða aðeins með útivist. Seinni partinn var svo VORhátíð í skólanum hjá Vöku. Lítið vorlegt í dag finnst mér. Ég fór svo eftir kvöldmatinn út með Nótt. Rokið gengið niður en rigningin öflug. Ég var í Cintamani regnjakkanum mínum, með hettuna á hausnum. Mér finnst ég nú alveg vera skvísa í honum sko...ekkert púkalegt við þá flík.
Nema hvað að þegar regnið dundi á hettunni, fóru í gegnum hugann minningar um rigningar tjaldútilegur í æsku.
, maður varð nú oft ansi blautur hér í den.
Berglind Gestsdottir
