VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Að þreyta labrador

30. apríl 2009 klukkan 13:06

Þá er maður kominn inn úr rigningunni einn daginn enn. Mér datt í hug ráð frá henni Ástu Dóru, hvernig best er að þreyta labrador. Nótt er nefnilega þindarlaus og gæti hlaupið út í hið endalausa. Alveg sama hvað ég er lengi með hana og hvað við erum að gera.........hún væri alltaf til í meira. En nú ákvað ég sem sagt að prófa ráðið frá Ástu Dóru. Að láta Nótt LEITA. Ég tók bolta með okkur og kastaði í öfuga átt við þá sem hún hélt hann færiLaughing og þá þurfti hún að leita. Hundar þreytast víst mest, ef þeir þurfa að nota hausinn og þefskynið. Hún fékk að leita og skila í svona 20 mínútur. Og svei mér þá ef hún er bara ekki lögst núna hér á annan púðann sinn.Cool Ætla að gera þetta oftar.
Það er ekkert að veðrinu. Milt,gott og rigningarúði. Bara að klæða sig eftir veðri hverju sinni. Þið munið! að ef þið hreyfið hundana ykkar lítið og eða sjaldan, þá  verður hundurinn ykkar leiðinlegur og getur farið að eyðileggja, og gera skammarstrik bara af leiðindum og innilokun. Þessu hef ég tekið eftir í þáttunum hjá Cesari Milan. Uppruni flestra vandamála hjá hundaeigendum er að hundurinn er sjaldan hreyfður. Fær jú að fara út í garð, en það fer fljótt að verða tilbreytingalaust.  Mér finnst aldrei nóg að bara taumganga með Nótt. Hún verður alltaf að fá að losa orku líka. Hlaupa í hrikalega flottum sprettum, aftur og aftur..
Jæja bið að heilsa ykkur í bili, er að fara á kvöldvakt.  

Berglind Gestsdottir

Skrifa athugasemd