HUNDUS IDIOTUS
Ég kom heim rétt fyrir miðnætti alveg búin á því eftir gjörgæsluna. Í póstlúgunni beið mín SÁMUR. Uppáhaldsblaðið mitt
. Ég ákvað að fara í gott fótabað og lesa Sám á meðan. AUÐUR SIF til hamingju með fyrsta blaðið þitt. Stútfullt af skemmtilegu og fræðandi lesefni. Ég komst ekki lengra en inn í mitt blaðið, las hverja einustu blaðsíðu. Sámur fékk að bíða á náttborðinu, og vakti mig kl.09 í morgun svo ég gæti haldið áfram lestrinum. Ég var svo spennt að lesa meira að ég gat ekki einu sinni sofið út.
Ég er hundus idiotus. Greinin með þessari yfirskrift er svo fyndin. Maður sér sjálfan sig alveg ljóslifandi alls staðar. Ég skellihló þegar ég las þetta. jæja þarf að drífa mig út með le dogs, framundan er 1.maí vöfflukaffi og svo fertugs afmæli í kvöld. Já já alltaf mikið að gera.
Njótið þess að eiga frí með hundunum ykkar. Farið út að leika

Föstudagur : 2 tíma gangur með Ask, Frosta, Steinunni, Gaby og Josh með sækiæfingum í vatn
Laugardagur: spor með vinum okkar og kennsla í snásasnyrtingu á eftir
Sunnudagur: opið hús hjá Retriever deildinni um morguninn og hvolpahittingur með Frosta eftir hádegi........