VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Skyndi og áfallahjálp fyrir hunda.

10. maí 2009 klukkan 16:57
Já þetta er sko eitthvað sem ég ætla að reyna að mæta á. Hjúkkan sjálf. Það munaði engu að ég réði mig í vinnu á dýralæknastofu fyrir nokkru síðan. Vinnutíminn hentaði bara ekki fjölskyldunni.
Mig dreymir um að vinna á dýralæknastofu. Kannski seinna. Maður á alltaf að reyna að láta draumana rætast. Ég er sannfærð um að ég yrði alveg súper dýrahjúkka.
Það verður fyrirlestur í Gerðubergi næsta föstudag/15.maí. frá kl. 18 - 2130. Ókeypis. Og eru það erlendir dýralæknar sem munu deila reynslu sinni. Efnið er skyndi og áfallahjálp fyrir hunda. Athugið að skráningarfrestur rennur út á morgunn 11.maí.

Aldrei þessu vant, þá á ég frí. á föstudaginn. Ég missi iðulega af fyrirlestrum og öðru vegna vinnutímans.
Berglind Gestsdottir
Kristín Á Gunnarsdóttir
 
Hæhæ

Það er nú sp. hvort ég þyrfti sjálf að komast í áfallahjálp hehe.Ég var að elda og átti bara eftir að setja hvítlauksbrauðið inn í ofninn ekki alveg kominnn tíminn á það. Við Guðjón þurftum aðeins að sinna Mána, þegar Guðjón fer inn í eldhús þá er Vetur búnn að næla sér í eitt stk. hvítlauksbrauð .Það var ekki mikill hamingja með það hjá okkur en svona er þetta að skilja hann eftir einann í SMÁ stund.Ótræulegt hann sem er svo fallegur og sakleysislegur en innst inni er hann algjör prakkari hhehehe :)

Kveðja

Kristín og Co.
10. maí 2009 klukkan 20:26

Skrifa athugasemd