Að leggja á borð fyrir hund :)
Kristín mín
...............ef þetta er í fyrsta skiptið sem hann gerir eitthvað svona, þá finnst mér þú hafa sloppið MJÖÖÖÖÖÖG vel. Alveg óborganlega fyndið. Sé hann fyrir mér hlaupandi með hvítlauksbrauðið hálfétið með Guðjón á hælunum. Ég veit að Brúnó komst yfir tertu sem húsfreyjan hafði haft mikið fyrir að gera og ætlaði að fara með í veislu.
Hann var heldur ekki vinsæll heima hjá sér þann daginn. Nótt hefur átt svona móment! Held að ALLIR eigi eina svona sögu til að segja frá.
Okkar er svona: Tengdamamma hafði einu sinni sem oftar komið færandi hendi, og eldað fyrir okkur slátur og grjónagraut. UMM eittþað besta sem heimilisfólkið fær. Hún hafði eldað extra mikið af slátri, til þess að gefa vinkonu sinni daginn eftir. Þegar við vorum búin að borða, færðum við okkur til að horfa á fréttir. Ég var ekkert að spá í hvað Nótt væri að bardúsa. Það heyrðist ekki MÚKK......fyrr en allt í einu, að mér fannst ég heyra kunnuglegt hljóð......skrölt í tómu plastfati!!!!!!! Nótt hafði gripið af borðinu plastfatið með þremur stórum sláturkeppum og fært ofur hljóðlega niður á gólfið. Þar gæddi hún sér á herlegheitunum og enginn varð var við neitt fyrr en hún fór að sleikja tómt fatið. JABB þrír stórir sláturkeppir í einu gói. Ég hljóp fram í eldhús í sjokki, og ég get svarið það stóð næstum því slátur út úr eyrunum á henni, hún var svo sæl og södd.
Ég tók út mína refsingu næstu þrjá daga með því að þrífa upp miður skemmtilegar hægðir. JUKK.
En svona uppákomur eru bara okkur sjálfum að kenna. Við lögðum á borð fyrir hundinn.
Maður lærir af reynslunni
