VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Heimsókn til Loka

13. maí 2009 klukkan 11:24
Ég fór í gær að heilsa upp á hann Loka litla, sem ég ætla að passa fyrir eina sem vinnur með mér. Þau hjónin komast lítið frá, og fannst mér gott að geta lagt þeim lið með að ætla að passa fyrir þau hundinn um helgina, þegar þau fara í skemmtiferð til Vestmannaeyja.
Loki, er loðinn Chihuahua. Þetta verður athyglisvert fyrir Loka litla. Að detta allt í einu inn í sambúð við tvo hunda í viðbót og mikla útivist. Hann verður þreyttur ræfillinn þegar hann snýr heim. En hann mun hafa mjög gott af dvölinni. Unnur ætlar að leyfa honum að sofa inni hjá sér.
Hún Sara sem á hann Loka, sagði að hann svæfi í risastóru búri.......ég fór svo að leita að þessu svakalega búri þegar ég komi til hennar, en gat ekki annað en hlegið þegar hún benti á það, svona 3xminna en búrið hennar Nætur.Laughing Loki kemur til okkar á morgun. Ég lofaði henni Soffíu að setja inn mynd af honum hér á síðunni um helgina. Ég mun standa við það.
Berglind Gestsdottir

Skrifa athugasemd