ÚT VIL EK
15. maí 2009 klukkan 23:53
Það kom sér ágætlega að vera með Bsc gráðu í hjúkrun. Hafa lokið sérhæfðu ILS-endurlífgunarnámskeiði og námskeiði í viðbrögðum við bráðatilfellum utan sjúkrahúsa, og vinna á gjörgæslusviði LSH.......á þessum fyrirlestri. Mér fannst nú full djúpt farið þarna fyrir leikmenn. Franski dýralæknirinn gerði svo eiginlega ráð fyrir að við værum með ótrúlegustu græjur og lyf við hendina heima fyrir.
Viðbrögðin við áföllum hjá hundum eru þau sömu og hjá mönnum. Ég var orðin viðþolslaus þarna inni, og gafst upp í hálfleik. Ég vildi frekar vera úti með hundunum. En frábært framtak hjá RC. Mæting var alveg ótrúleg, miðað við að það er föstudagur og veðrið með ólíkindum gott. Ég skellti mér beint út í góðan göngutúr, með hundskottin þrjú.
Verð að segja ykkur einn góðan.
Hún Ágústa er vinkona Vöku og býr í húsinu á móti okkur. Fjölskyldan hennar var að taka að sér 3ja ára labrador. OG VITIÐI! HANN FER BARA ÚR HÁRUM ÞEGAR HANN HRISTIR SIG.
Börn eru dásamleg.
Ætla að skella mér í bælið með bók sem mér áskotnaðist á fyrirlestrinum. Coat colours in dogs/judge and breeders manual. Örugglega eitthvað áhugavert þar.
Viðbrögðin við áföllum hjá hundum eru þau sömu og hjá mönnum. Ég var orðin viðþolslaus þarna inni, og gafst upp í hálfleik. Ég vildi frekar vera úti með hundunum. En frábært framtak hjá RC. Mæting var alveg ótrúleg, miðað við að það er föstudagur og veðrið með ólíkindum gott. Ég skellti mér beint út í góðan göngutúr, með hundskottin þrjú.Verð að segja ykkur einn góðan.
Hún Ágústa er vinkona Vöku og býr í húsinu á móti okkur. Fjölskyldan hennar var að taka að sér 3ja ára labrador. OG VITIÐI! HANN FER BARA ÚR HÁRUM ÞEGAR HANN HRISTIR SIG.
Börn eru dásamleg.Ætla að skella mér í bælið með bók sem mér áskotnaðist á fyrirlestrinum. Coat colours in dogs/judge and breeders manual. Örugglega eitthvað áhugavert þar.
Berglind Gestsdottir
