VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Viðburðarík helgi að baki.

17. maí 2009 klukkan 22:06
Þá er Loki farinn heim. Hann var nú mjög glaður að sjá "mömmu" sína hana Söru. Ég vona að hann hafi bara verið sáttur við dvölina hjá okkur Kiss. Við vorum heillengi upp við Hafravatn í gær. Nótt var svo heitt og henni fannst svo gott að kæla sig. 'Eg naut þess að "tana" mig á vatnsbakkanum.
Í morgunn tók ég svo daginn snemma og skellti mér í Sólheimakotið. Vá hvað það var gott að hitta Guðbjörgu og Ask. Ég knúsaði hana endalaust. Ég plataði hann Smára sem á Oliver með mér í Kotið.  Þarna voru líka Dóri vinur minn og aðal veiðigæjarnir. Sigurmon, Sammi og fleiri. Algjörir töffararWink að ógleymdum fullt af ótrúlega flottum goldenum, Josh og fleirum. Ég mætti með vínabrauð með kaffinu. Viskubrunnurinn að þessu sinni í Kotinu var hún Sigríður Pétursdóttir, sem er eini íslenski retriever dómarinn. Vá hvað hún lét okkur heyra það. Hún var alveg dásamleg, alveg hund skammaði okkur, og var mjög hreinskilin. he,he.. Við höfðum GOTT AF ÞESSU.
Þið sem mættuð ekki misstuð af Dóra, brillera. Sigríður lét okkur hlaupa með hundana, í sýningarhringi. Hún hafði orð á því hvernig ég DRATTAÐIST með Nótt, og að Dóri væri léttfættari en Salka. Hann hreinlega sveif og var hrikalega flottur, maður bara gleymdi að horfa á hundinn.Laughing Við fengum okkur svo kaffi og með því. Spjölluðum og göntuðumst.
Eftir Kotið fórum við Smári með mæðginin og leyfðum þeim að kæla sig í Rauðavatni.

Endilega kíkið á myndirnar af Nótt í mynda albúminu sem ég tók í dag.




Berglind Gestsdottir
já við missum alltaf af, búnar að vera veislur hvern einasta sunnudag síðan þetta byrjaði en ég vona að komast eitthvað en þó ekki næst því þá verð ég í útlöndum :D
Langaði bara að kvitta smá ;)
18. maí 2009 klukkan 13:04

Skrifa athugasemd