Skemmtilegur dagur.
Ég er svo fegin að ég skuli vakna snemma á sólardögum eins og þessum sem nú er að kveldi kominn.
Ákvað að vekja Smára sem á Oliver kl. 0930, og drífa þá út. Þeir félagarnir eru alltaf til í útivist.
. Vaka og María komu að sjálfsögðu líka. Þær eru svo frábærar vinkonur. Við hittumst í Hamrahlíðinni og röltum um þar og áleiðis upp Úlfarsfellið. Við lentum auðvitað í ævintýri....eins og virðist fylgja okkar ferðum. he,he. En alltaf enda þær vel. Eftir Úlfarsfellið skelltum við okkur með hundana upp að Hafravatni og vorum lengi þar. Nótt og Oliver syntu ótal ferðir. Kl 13 var hungrið farið að sverfa að og við kvöddum Smára, Oliver og Maríu. Takk fyrir frábæra samveru eins og alltaf. Við hittum Nátttrölla gengið úr Lágholtinu. Það dró ský fyrir sólu, og ég hafði lofað sjálfri mér því að þegar að því kæmi, þá væri komið að því að þrífa húsið. Og það gerði ég. Að því loknu um kl. 16 þá fórum við á stefnumót við Brúnó og vorum með honum til klukkan að verða 18. Það var gaman að sjá hvað Nótt og hann eru líkar týpur að byggingu....hann er draumaprinsinn.
Við Nótt erum báðar uppgefnar en alsælar með frábæran útivistardag.
Og hér kemur smá skemmtisaga.
Vaka var að spá í hvað uppstigningardagur þýddi aftur...og ég reyndi að útskýra það, á einfaldan hátt.
Það tókst ekki betur en svo að hún sagði..........ok fór hann upp stiga.........uh nei sagði ég......já ég skil sagði hún. Hann gufaði bara upp. Mikið rétt, blessaður maðurinn gufaði bara upp og hefur ekki sést síðan. he,he. hún er alveg dásamleg
