Elísabet Anna
26. maí 2009 klukkan 08:57
Það er svo gaman þegar fólk á biðlistanum eftir hvolpi, sýnir áhuga og fylgist vel með. Þar á meðal er hún Elísabet Anna og hennar fjölskylda. Mikið held ég að það verði gaman í þeirri fjölskyldu þegar hvolpaskott bætist við. Elísabet fylgist vel með síðunni okkar og sendir mér reglulega póst. Elísabet! mér þykir vænt um áhugann.
Mér þykir líka voða vænt um hana Bryndísi vinkonu mína hjá Sóltúns ræktun, sem er mér stoð og stytta. Ég leita til hennar í hundamálum og hún til mín.
Það er gott að eiga vini.
Annars er planið fyrir daginn, að vera í garðinum og snyrta til. Nótt verður að skottast í kringum mig. Við förum líka í einn góðan göngutúr eftir hádegi. Mér sýnist á veðrinu að Nótt fái að fara að synda.
Njótð dagsins til hins ítrasta.

Mér þykir líka voða vænt um hana Bryndísi vinkonu mína hjá Sóltúns ræktun, sem er mér stoð og stytta. Ég leita til hennar í hundamálum og hún til mín.
Það er gott að eiga vini.Annars er planið fyrir daginn, að vera í garðinum og snyrta til. Nótt verður að skottast í kringum mig. Við förum líka í einn góðan göngutúr eftir hádegi. Mér sýnist á veðrinu að Nótt fái að fara að synda.
Njótð dagsins til hins ítrasta.
Berglind Gestsdottir

Kær kveðja,
Elísabet