VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Dýrðar dagur

27. maí 2009 klukkan 00:31
Dýrðar dagur að baki. Við snöruðum okkur í garðinn fyrir hádegið. Skelfing er nú lítið skemmtilegt að reita arfa.....ég er með voða fölgrænar hendurUndecided. En þetta þarf víst að gera, þegar maður á garð. Okkar garður er reyndar eins og frumskógur, það er svo mikið af gróðri. Náði að fylla svartan ruslapoka af ósóma. Um hádegisbilið skellti ég mér upp að Hafravatni með Nótt. Hún er farin að þekkja leiðina mjög vel og hreinlega veinar af tilhlökkun í bílnum á leiðinni. Ég fór með leikfangið góða og bolta sem var komið gat á. Hann sökk auðvitað í fyrsta kasti og Nótt ræfillinn sem sá boltann þeysast út í vatnið synti, og synti, eftir boltanum sem hvarf eins og dögg fyrir sólu. Hún hefði sjálfsagt synt yfir vatnið ef ég hefði ekki snúið henni við. Smile Hún verður alveg miður sín þegar hún týnir boltum.
Ég einsetti mér að vera komin til baka þegar Vaka kæmi heim úr skólanum. Ég rétt náði að gefa henni að borða og svo var hún þotin aftur. Hún er nefnilega búin að finna sér gamlan mann í hesthúsunum fyrir neðan okkur, sem er tilbúinn að teyma undir henni um víðan völl, og síðustu tvo daga, hefur sést til hennar hnarreista á baki. Og ég get sagt ykkur að þetta er enginn smá leið sem verið er að dröslast með hana. Ég þorði ekki að veifa til hennar í dag, ég var svo hrædd um að hún myndi hrynja af baki.
Ég gat ekki hugsað mér að vera inni í þessu yndislega veðri, þannig að ég fann mér verkefni. Þreif gluggana á húsinu að utan. Þreif bílinn......og ef það hefði verið til málning á húsið þá hefði ég örugglega náð að sletta einni umferð á það. Kl. 17 var það bekkjargrill í Heiðmörk með Vöku. Þá heim að elda ofan í fullorðnu drengina. Og eftir það varð ég að fara í kvöldgöngu. Við Vaka fórum aftur upp að vatni, og ég var hætt að þora að telja ferðirnar hennar Nætur út í vatnið. Vaka er mikill safnari...við miskmikla hrifningu föður síns. Hún dregur hina ýmsu hluti með sér heim úr göngutúrunum. Í kvöld voru það tvær AFSKAPLEGA merkilegar spýtur. Eitt uppslitið blóm og flotholt. Í gær kom hún heim með fullan poka af steinum. Hún finnur alltaf eitthvað. Hún er fullviss um að þetta sé hægt að nota allt saman. Flotholtið ætlar hún að láta pabba sinn fá.......hann veiðir aldrei t.d.
Maður er líkamlega þreyttur eftir útivistina. Það er svo góð þreyta.
Kæra Elísabet takk fyrir að skrifa fallega athugasemd.Laughing 

Berglind Gestsdottir
Er greyið þá ekki alltaf miður sín, þetta er nú ekki fyrsti boltinn sem týnist hjá ykkur (hóst hóst) :D
27. maí 2009 klukkan 08:52

Skrifa athugasemd