Leiðinda taumganga
07. júní 2009 klukkan 22:20
Það var eitthvað svo blautt og drungalegt í dag, að ég ákvað að fara í "leiðinda" taumgöngu.......Nótt finnst taumganga skelfing leiðinleg. En hún er heldur aldrei þreyttari en einmitt eftir þær. Þá reynir á þolinmæðina hjá henni, og það fara nokkrar kaloríur í það.
Annars ekkert markvert. Heyrði aðeins í Smára sem á Oliver, sem segir Oliver ástæðuna fyrir því að hann geti staðið í fæturnar, eftir slysið sem hann lenti í. Oliver er hvatning til að fara út og hreyfa sig. Oliver er líka yndislegur karakter og vekur alls staðar athygli, og það er aldrei leiðinlegt. Reyndar er hann að ögra eiganda sínum þessa dagana. Gelgjan farin að gera vart við sig svo um munar. Þá er það bara harkan sex í uppeldinu.

Berglind Gestsdottir