Kringlan og útitónleikar
14. júní 2009 klukkan 00:16
Eyddi næstum 4 klukkutímum í Kringlunni í dag. Ákvað að dröslast einu sinni með Vöku, þar sem mikið var af uppákomum. Grease......fengum áritað plakat........Jóhanna Guðrún..........biðum í 2 klukkutíma í röð eftir dívunni.......fengum áritaðan disk og plakat. Keyptum afmæliskjól á Vöku og sumarlega skó.Hún verður 7 ára á mánudaginn. Ég var svo búin á því eftir þessa ferð. Fór heim og fékk útrás við húsverkin. Nótt lét lítið fyrir sér fara......hundar eru næmir
. Fórum svo í kvöld að sjá We made god spila á útitónleikum hér í Mos.
Var að spá í að taka Nótt með mér, en óttaðist hávaðann..
Dagurinn hjá Nóttinni var því viðburðarsnauðari en hjá mér.
Á morgun förum við upp að vatni með bolta. Alveg kominn tími á það.
Fékk þær fréttir á föstudaginn, að það þyrfti að endurtaka myndirnar hjá draumaprinsinum. Hann fer strax í aðra myndatöku á mánudaginn og vonandi ganga hlutirnir fljótt fyrir sig eftir það. Ég er róleg. Við höfum tímann með okkur í þetta sinn.
. Fórum svo í kvöld að sjá We made god spila á útitónleikum hér í Mos.Var að spá í að taka Nótt með mér, en óttaðist hávaðann..
Dagurinn hjá Nóttinni var því viðburðarsnauðari en hjá mér.

Á morgun förum við upp að vatni með bolta. Alveg kominn tími á það.
Fékk þær fréttir á föstudaginn, að það þyrfti að endurtaka myndirnar hjá draumaprinsinum. Hann fer strax í aðra myndatöku á mánudaginn og vonandi ganga hlutirnir fljótt fyrir sig eftir það. Ég er róleg. Við höfum tímann með okkur í þetta sinn.
Berglind Gestsdottir
