Hundahvíslarinn Vaka á afmæli í dag.
15. júní 2009 klukkan 09:51
Þá er upprunninn dýrðardagurinn 15. júní. Vaka á afmæli í dag. Hún er 7 ára. Hér verður veisla seinni partinn.
Nótt heldur upp á sitt afmæli sem er á morgun 16.júní í leiðinni. Nótt verður 3 ára. Hún fær líka gesti. Ungversku viszluna MÍU, og labradorinn AÞENU. Það verður væntanlega hamagangur í öskjunni og Tumi gargandi á eftir þeim stöllum að reyna að siða þær til....það er að segja viszluna og labradorana.
Ég set Unni á myndavélina. Reyni með einhverju móti að ná myndum af afmælisbörnunum saman

Berglind Gestsdottir

Til hamingju með daginn Vaka og Berglin til hamingju með dótturina vona að þið eigið góðan dag í dag :) Það hafa það allir það gott hérna í Bolungarvík og Vetur er í paradís það er svo gaman hjá honum stutt í Hólsá og fjöllinn.
Kær kveðja
Kristín og Co.